Veiði

Laxveiðin byrjar 5. júní

Karl Lúðvíksson skrifar
Fyrstu laxarnir eru mættir í árnar
Fyrstu laxarnir eru mættir í árnar
Það styttist hratt í að fyrstu laxveiðiárnar opni fyrir veiði en Blanda og Norðurá opna báðar 5. júní.

Það hefur nú stundum verið nokkuð kapp á milli veiðimanna í þessum tveimur ám um að landa fyrsta laxi sumarsins og sum árin hefur það bara verið mínútuspurning hvor áin koma fyrsta laxinum á land.  Nú þegar hafa fyrstu laxarnir sést í Norðurá og nokkuð líklegt þykir að laxinn sé líka mættur í Blöndu.  Þegar rýnt er í gögn um seiðatalningar í nokkrum ám má alveg gera ráð fyrir því að sumarið geti orðið gott og þá sérstaklega á Suð- vestur og vesturlandi en seiðabúskapur í ánum þar, þá sérstaklega Langá, Haffjarðará, Grímsá, Þverá og Norðurá, þykir góður og öll merki eru um að sterkir árgangar hafi farið til sjávar í fyrra sem eiga að skila sér sem eins árs laxar á þessu sumri.  Ástand sjávar hefur þó gífurlega mikil áhrif eins og sjá mátti á veiðisumrinu 2012 sem var afar slæmt sumar.  Sumarið 2011 fóru ágætar seiðagöngur úr mörgum ánum sem skiluðu sér illa til baka en reiknaðar heimtur voru í sumum tilfellum líklega undir 1% sem er mjög léleg heimta.  Allt bendir til að ástand sjávar sé gott og veiðimenn um land allt væntanlega kross fingur og vona hið besta.






×