Kaup á aðgerðarþjarka fyrir Landspítala tryggð Stefán Ó. Jónsson skrifar 26. júní 2014 17:18 Kristján Þór Júlíusson, Páll Matthíasson og Brynjólfur Bjarnason við undirritunina í dag. MYND/Velferðarráðuneytið
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra, Páll Matthíasson, forstjóri Landspítala og Brynjólfur Bjarnason, formaður stjórnar Söfnunarsjóðs um aðgerðaþjarka fyrir Landspítala undirrituðu í dag samkomulag um fjármögnun aðgerðaþjarka fyrir spítalann. Við sama tækifæri var afhent söfnunarfé sem stendur undir nærri helmingi kaupverðsins. Þetta kemur fram á vef velferðarráðuneytisins.Söfnunarátak til kaupa á þjarkanum hófst fyrir tveimur árum. Stofnaður var söfnunarsjóður og varð að samkomulagi milli sjóðsins og Landspítalans að þjarkinn yrði keyptur tækist að safna fyrir um helmingi kaupverðsins. Átakinu lauk með því að Pokasjóður lagði fram 25 milljónir króna í söfnunina. Þar með voru komnar 110 milljónir í sjóðinn og fjármögnunin þar með tryggð.Á síðustu árum hefur svokallaður aðgerðarþjarki (róbót) verið tekinn í notkun á helstu sjúkrahúsum í nágrannalöndunum. Búnaðurinn nýtist til margvíslegra skurðaðgerða, sérstaklega þó við þvagfæraskurðlækningar og aðgerðir á grindarholslíffærum kvenna. Aðgerðir með þessari aðferð eru inngripsminni en ella, bati er skjótari og hægt að hlífa betur nærliggjandi líffærum og viðkvæmri starfsemi.
Mest lesið Viðbragð lögreglu og sjúkraflutningamanna í nágrenni Selfoss Innlent Vance átti í skoðanaskiptum við hægri hönd páfans Erlent Einn í haldi lögreglu vegna konu með skerta meðvitund Innlent Bjósti ekki við að ríkisstjórnin héldi meirihluta Innlent Segjast hafa uppgötvað nýjan lit sem ekki hefur sést áður Erlent Ræddi við foreldra og hætta við miklar hækkanir Innlent Gagnrýnir brattar hækkanir: „Þetta er bara dapurlegt“ Innlent Ökumaður undir aldri í bílaeltingarleik við lögreglu Innlent Vestfjarðaleiðin verði Hringvegur númer tvö Innlent Á fjórða hundrað stórskotaliðsárása á fyrstu nótt vopnahlés Erlent Fleiri fréttir „Við megum mótmæla því að verið sé að drepa saklaust fólk“ Falla frá bröttum gjaldskrárhækkunum eftir ábendingar foreldra Einn í haldi lögreglu vegna konu með skerta meðvitund Falla frá gjaldskrárhækkunum og árásir á tímum vopnahlés Átti ekki von á að ríkisstjórnin myndi halda kjöri Viðbragð lögreglu og sjúkraflutningamanna í nágrenni Selfoss Vestfjarðaleiðin verði Hringvegur númer tvö Ferill fyrrum forsætisráðherra og verðlaunaður sagnfræðingur í Sprengisandi Rólegheitaveður á páskadag Ökumaður undir aldri í bílaeltingarleik við lögreglu Mótmæla brottvísun Oscars Gagnrýnir brattar hækkanir: „Þetta er bara dapurlegt“ Eitthvað búi að baki „meira en þrá hans eftir friði“ Engin tengsl milli þolenda og gerenda Tortryggni í garð Rússa og ungmennaráð sem fékk ekkert að segja Móðirin hafi þurft að sárbæna hann til að hitta barnið á spítala Handtekinn á Húsavík með tölvert magn fíkniefna Bora tilraunaholu til að framleiða heitt vatn á höfuðborgarsvæðinu „Það er eitthvað við það að vera hérna“ Koma strandaglópunum heim í kvöld Áhyggjuefni að brotaþolar treysti ekki dómstólum Unglingur stakk óboðinn gest í bakið til að verja fjölskyldumeðlim Fólskuleg líkamsárás og strandaglópar í suðri „Þeir liggja hérna eins og hráviði út um allt“ Tveir handteknir vegna líkamsárásar Við Íslendingar fórum bara á vertíð og drifum þetta af Náðist á upptöku þegar skipulagðir þjófar tóku sjóðsvél „Rosalega erfitt“ að keppa við innflutt grænmeti Stígvél og tækniframfarir Hótanir gegn háskólum og krossfestingar Sjá meira