Svæði IV í Stóru Laxá komið í gang Karl Lúðvíksson [email protected] skrifar 4. júlí 2014 14:52 Einn af dönsku veiðimönnunum með lax frá því í morgun
Stóra Laxá var líklega sú á sem kom mest á óvart í fyrra en þá veiddust 1776 laxar í ánni sem er met. Áin hefur lengi átt stórann hóp aðdáenda enda fáar ár sem státa af jafn stórbrotnu umhverfi. Veiðin hefur verið upp og ofan í gegnum tíðina en eftir að maðkur og spúnn var bannaður, ásamt því að hvetja menn til að sleppa, tekur áin vonandi við sér og sumar eins og í fyrra verður normið. Búið er að taka veiðihúsin öll rækilega í gegn svo það á ekki að væsa um þá sem eiga daga þarna í sumar en mikil eftirspurn er eftir leyfum í ánna. Danskir veiðimenn sem eru við ánna fengu 6 laxa í morgun á svæði IV og settu í fleiri. Svæði IV er klárlega eitt af fallegri veiðisvæðum landsins með gljúfrum og strengjum en að sama skapi krefjandi fyrir veiðimenn. Af öðrum svæðum í ánni er það að frétta að búið er að bóka 4 laxa af svæði I-II en ekki liggur fyrir hvort eitthvað sé komið á land af svæði III. Áin hefur í gegnum tíðina verið rómuð síðsumarsá en svo koma ár þar sem laxinn kemur snemma og eins getur góð bleikjuveiði á neðri svæðunum bætt upp dagana þegar rólegt hefur verið í laxinum. Laus leyfi má finna á www.lax-a.net
Stangveiði Mest lesið 112 sentimetra stórlax úr Vatnsdalsá Veiði Breyta veiðireglum vegna urriðadráps Veiði Gæsaveiðin gengur vel um allt land Veiði Ertu eiginkona veiðimanns? Veiði Framleiða sjónvarpsþætti um sportveiði Veiði Villingavatnsárós opnar á laugardag Veiði Laxá í Kjós gaf 137 laxa í liðinni viku Veiði Veiðin fer vel af stað í Hlíðarvatni Veiði Veiðimyndakeppni flugunnar Zeldu í gangi Veiði Síðasta helgin til rjúpnaveiða framundan Veiði