Tíunda umferðin í Pepsi-deild karla í knattspyrnu klárast í kvöld með fjórum leikjum, en viðureign Fjölnis og Fylkis verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport klukkan 20.00.
Í beinu framhaldi af leiknum verða Pepsi-mörkin á dagskrá en þau hefjast klukkan 22.00. Þar gera HörðurMagnússon og sérfræðingar hans upp alla leiki umferðarinnar.
Fjölnir og Fylkir hafa ekki mæst oft í deildakeppninni; aðeins fjórum sinnum. Það var tímabilin 2008 og 2009, þegar Fjölnir lék síðast í efstu deild. Þeir komu upp sem nýliðar 2008 og áttu frábært sumar en féllu svo ári síðar.
Sumarið 2009 mættust liðin í Grafarvogi og þar unnu Árbæingar sigur, 3-1. IngimundurNíels Óskarsson fór á kostum og skoraði tvö mörk og gaf eina stoðsendingu. Hann spilar með FH í dag.
Þórður Ingason, markvörður Fjölnis, vill eflaust gleyma þessum leik sem fyrst en það var farið ansi illa með hann í fyrstu tveimur mörkunum og svo lét hann aukaspyrnu Ingimundar Níels sleppa undir sig á 54. mínútu.
Illugi Þór Gunnarsson minnkaði muninn í 2-1 fyrir Fjöni á 45. mínútu með glæsilegu marki sem FjalarÞorgeirsson, þáverandi markförður Fylkis, réði ekkert við. Það dugði þó ekki til í þessum leik.
Ásmundur Arnarsson, núverandi þjálfari Fylkis, þjálfaði Fjölni á þessum tíma og aðstoðarmaður hans var Ágúst Þór Gylfason, sá er þjálfar Fjölni í dag. Ólafur Þórðarson var við stjórnvölinn hjá Fylki og stýrði liðinu í þriðja sæti deildarinnar og í Evrópukeppni.
Svipmyndir frá leiknum má sjá í spilaranum hér að ofan.
Þrumufleygur Illuga dugði ekki til gegn Fylki | Myndband
Tómas Þór Þórðarson skrifar
Mest lesið



Arnór Borg í Vestra og Fram fann markmann
Íslenski boltinn

„Þetta er úrslitakeppnin og hlutir gerast“
Körfubolti

Valur í kjörstöðu gegn ÍR
Handbolti


Víkingur fær leikmann úr dönsku B-deildinni
Íslenski boltinn

Mark snemma leiks gerði gæfumuninn
Fótbolti

Upgjörið: Breiðablik - Fram 7-1 | Upprúllun í Kópavogi
Íslenski boltinn
