Á allra næstu dögum mun Umhverfisstofnun í samstarfi við Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra auka stórlega vöktun á styrk brennisteinsdíoxíðs frá eldgosinu í Holuhrauni.
Fram kemur í tilkynningu frá Umhverfisstöfnum að keyptir hafa verið 40 mælar og verður mælingin í höndum þeirra sem starfa að almannavörnum á hverjum stað, s.s lögreglu.
Við kaup á mælum var lögð höfuðáhersla á að kaupa mæla sem auðveldlega mætti koma fyrir á sem flestum stöðum um land allt til að tryggja sem þéttast mælinet á sem stystum tíma og kosturinn við að hafa þá hreyfanlega auðveldar einnig viðbragðsteymum að bregðast skjótt við ófyrirséðum aðstæðum.
Vegna eldgossins í Holuhrauni hefur undanfarið verið unnið að því að þétta net mælitækja sem mæla brennisteinsdíoxíð.
Við venjubundnar aðstæður hefur hefur SO2 nær eingöngu verið mælt í nágrenni stóriðjufyrirtækja. Eftir að eldgosið hófst og mengun frá brennisteinsdíoxíði er orðin raunverulegt vandamál í byggð skapaðist þörf fyrir að þétta mælinetið verulega og gera það hratt.
Almannavarnaryfirvöld í samráði við Umhverfisstofnun óskuðu eftir því við Landvirkjun, Alcoa, Norðurál og Elkem að þessi fyrirtæki lánuðu hluta af sínum mælibúnaði til þessa verkefnis. Fyrirtækin brugðust mjög vel við þeim beiðnum og eru þeim færðar þakkir fyrir.
Þá hafa Landsvirkjun, HS Orka og Orkuveita Reykjavíkur breytt sínum mælum sem þessi fyrirtæki höfðu til að mæla H2S (brennisteinsvetni) á jarðhitasvæðum til að mæla einnig SO2.
Nettengdir mælar verða staðsettir á eftirtöldum stöðum:
1. Akureyri
2. Vogar við Mývatn
3. Grunnskólinn í Reykjahlíð
4. Eyvindartstaðir í Kelduhverfi
5. Vopnafjörður
6. Egilsstaðir
7. Hjallaleyra í Reyðarfirði
8. Ljósá í Reyðarfirði
9. Hólmar Í Reyðarfirði
10. Leirubakki í Landssveit
11. Hveragerði
12. Við Hellisheiðarvirkjun
13. Norðlingaholt í Reykjavík
14. Grensásvegur í Reykjavík
15. Færanleg stöð Reykjavíkurborgar
16. Dalsmári í Kópavogi
17. Hvaleyrarholt í Hafnarfirði
18. Grindavík
19. Gröf í Hvalfirði
20. Kríuvarða í Hvalfirði
Áætlanir gera ráð fyrir staðsetningu nýrra mæla á eftirtöldum stöðum og verður unnið í samstarfi við sveitastjórnir á hverjum stað:
1. Húsavík
2. Raufarhöfn
3. Þórshöfn
4. Bakkafjörður
5. Borgarfjörður-Eystri
6. Innst í Fljótsdal
7. Innst í Jökuldal
8. Seyðisfjörður
9. Neskaupsstaður
10. Fáskrúðsfjörður
11. Breiðdalsvík
12. Djúpivogur
13. Höfn
14. Skaftafell
15. Kirkjubæjarklaustur
16. Vík
17. Hvolsvöllur
18. Borgarnes
19. Uppsveitir Borgarfjarðar
20. Stykkishólmur
21. Ísafjörður
22. Hvammstangi
23. Sauðárkrókur
Hafa keypt 40 mæla til að auka vöktun á styrk brennisteinsdíoxíðs
Stefán Árni Pálsson skrifar
