Margir skírskotanir eru til um að píkan lykti eins og fiskur og að undir forhúð typpis safnist saman einskonar typpaostur sem minni á vel myglaðan ost. Þetta er umræða á villigötum sem hjálpar engum.
Því er tímabært að ræða þetta aðeins af hreinskilni.
Hvernig eiga kynfærin að lykta?
Það er erfitt að lýsa kynfæralykt því bæði er hún einstaklinsbundin en einnig skiptir máli á hvaða stað í tíðahringnum píkan er. Þá verður lyktin einnig önnur ef sæði blandast saman við píkuna því ákveðin lykt er af sæði.
Hvenær ætti ég að hafa áhyggjur?
Ef þér þykir lyktin sterk þegar þú ert nýkomin/nn úr sturtu þá getur það verið merki um einhvers konar bakteríu sýkingu, þá er gott að kíkja til læknis eða fá krem eða lyf í næsta apóteki.

Kynfæri eru ekki hönnuð fyrir sápu, sérstaklega ekki þá sem inniheldur ilmefni. Það er nóg að skola bara kynfærin með vatni. Draga aftur forhúð ef þú ert með typpi og bara skola utan á píkuna en ekki sprauta vatni inn í leggöngin, alltaf bara utan á. Ilmandi krem og sápur geta valdið ertingu og því er vissara að sleppa því alfarið. Það eru til sérstakar sápur sem eru hannaðar fyrir kynfæraþvott.
En ég óttast munnmök útaf lyktinni...?
Ef þú telur að lyktin þín sé óeðlileg eða mjög sterk þá er gott að kíkja til læknis. Mundu að það er eðlilegt að það sé lykt af kynfærum og mörgum þykir lyktin æsandi og hluti af keleríinu.
Er eitthvað sem ég get gert til að bæta lyktina?
Farðu reglulega í sturtu (daglega), vertu í nærfatnaði sem er úr náttúrulegum efnum líkt og bómul og sumir mæla með að neyta vel af jógúrti til að viðhalda góðri bakteríuflóru.