Vilborg gerir aðra atlögu að Everest

Þann 18. apríl þegar Vilborg var stödd í hlíðum Everest féll stórt snjóflóð skammt frá grunnbúðunum. Um er að ræða eitt mannskæðasta slys sem gerst hefur á fjallinu, en margir sjerpar létust. Fjölmörgum leiðöngrum upp Everest var aflýst vegna snjóflóðsins, þar á meðal leiðangri Vilborgar.
Upprunalega markmið Vilborgar var að fara á hæstu tinda hverrar heimsálfu á einu ári og átti hún bara Everest eftir í vor.
„Það var markmiðið, en þegar svona hlutir gerast leggur maður það til hliðar.“
Hún hitti marga sjerpa í Tíbet nýverið þar sem hún fór á topp fjallsins Cho Oyo. Hún segir það hafa verið létti að hitta sjerpana aftur í sínum aðstæðum og að margir þeirra hafi ætlað aftur á Everest. Cho Oyo er sjötta hæsta fjall heims. Sjálfur leiðangurinn upp fjallið tók rúman mánuð og fór Vilborg upp fjallið án allrar aðstoðar.
„Ég var ekki með leiðsögumenn eða burðarmenn og notaði ekki súrefni.“
Vilborg er nú nýkomin heim til Íslands. „Núna er ég komin heim en ég leit að vissu leyti á Cho Oyo sem hluta af æfingunni fyrir Everest. Nú tek ég nokkra hvíldardaga og fer svo á fullt í æfingar. Ég er með fókuseruð á Everest markmiðið og er spennt að takast á við það. Maður krossleggur fingur og vonar að allt fari vel í þetta skipti.“
Tengdar fréttir

Ingólfur á leið af Everestfjalli
Segir hóp Sjerpa hafa hótað líkamsmeiðingum.

Vilborg Arna tekur þátt í umönnunarstörfum á Everest
Vilborg Arna vaknaði við hávaðann í snjóflóðinu og fylgdist hún með björgunaraðgerðum í nótt. Hún hlúir nú að hinum slösuðu í sjúkratjöldum í grunnbúðum Everest.

Vilborg sátt en svöng eftir leiðangurinn
Vilborg Arna Gissurardóttir, pólfari, komst upp á sjötta hæsta fjallatind heims síðastliðinn fimmtudag, tind fjallsins Cho Oyu í Tíbet.

Aðstandendur sjerpanna vilja hærri bætur
Þrettán eru látnir og leit hefur verið hætt að þeim þremur sem enn er saknað.

"Þetta er virkilega erfiður dagur og allir hér hafa misst í dag"
Vilborg Arna Gissurardóttir hefur ekki tekið ákvörðun um framhald leiðangurs síns á Everest, eftir mannskæðasta slys í sögu fjallsins, sem varð þegar snjóflóð féll í nótt. Þrír Íslendingar hafa látist á Everest.

„Það er engin leið að útskýra hvernig manni líður“
"Þennan dag bar margt fyrir sjónir sem ég á aldrei eftir að gleyma, en ég ætla ekki endilega að reyna að koma því í orð,“ segir Vilborg Arna Gissurardóttir, sem hefur ekki ákveðið framhaldið. Það sé ekki forgangsatriði að svo stöddu.

Vilborg Arna: „Get ekki réttlætt áframhaldandi för“
Leiðsögumenn á Everestfjalli hafa lagt niður störf og undirbúa nú brottför af fjallinu.

„Vonbrigði mín eru ekkert miðað við veruleika þeirra sem misstu ástvini“
Fjallaleiðsögumenn á Everest tóku í dag ákvörðun um að hætta frekari ferðum á fjallið, í kjölfar kjarabaráttu sem til kom vegna snjóflóðsins sem varð sextán félögum þeirra að bana. Íslendingarnir tveir sem staddir eru í grunnbúðum fjallsins segjast styðja ákvörðunina.

Þrettán látnir í snjóflóði á Everest
Að minnsta kosti þrettán eru látnir í snjóflóði sem féll í hlíðum Everest snemma í morgun. Þetta er talið eitt mannskæðasta slys í sögu Everest.

Engar ferðir á tind Everestfjalls í ár
Leiðsögumenn hafa lagt niður störf og undirbúa nú brottför af fjallinu.

Vilborg Arna komin í grunnbúðir Everest
Heimshornaflakkarinn Vilborg Arna Gissurardóttir dvelur nú í um 5300 metra hæð.