Hafa áhyggjur af áhrifum gosmengunar Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 12. október 2014 22:00
Íbúar á Austurlandi hafa áhyggjur af áhrifum þeirrar miklu gosmengunar sem verið hefur á svæðinu á meðan á gosinu í Holuhrauni hefur staðið. Þetta segir forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar. Sala öndunarfæralyfja hefur aukist um þriðjung á Austulandi frá því að gosið í Holuhrauni hófst fyrir rúmum sex vikum. Þangað til í síðustu viku voru vindáttir að mestu þannig að gosmengunin fór yfir Norður- og Austurland. Íbúar hafa þvi sumir áhyggjur af áhrifum gosmengunarinnar til lengri tíma. Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar, segir áhyggjuefni hvað mengunin hafi verið mikil og þess vegna hafi verið lagt kapp á að fjölga mengunarmælum á svæðinu. Þeir séu nú víða í þéttbýli á Austurlandi. Með þvi geti íbúar betur fylgst með. Þeir hafi margir fundið vel fyrir menguninni enda fari hún oft illa í þá sem eru með öndunarfærasjúkdóma eins og astma. Þannig segir Jón þá finna fyrir óþægindum eins og sviða og höfuðverk. Jón telur mikilvægt að rannsaka langtímaáhrif gosmengunarinnar. Íbúar séu duglegir að fylgjast með spám um það hvert gosmengunin fari til að bregðast rétt við. Börnum hafi verið haldið inni þegar mengunin er mikil til að mynda í leikskólum og skólum. Þá segir hann víða sérstaka fræðslu hafa farið fram í skólum til að draga úr hræðslu hjá börnum á svæðinu við eldgosið.
Bárðarbunga Mest lesið Hafþór keppir í Rússlandi: „Auðvitað veldur þessi ákvörðun ákveðnum vonbrigðum“ Innlent Morðhótunum í garð kvenna fari fjölgandi Innlent Engar reglur á Íslandi um hve mörg börn sæðisgjafar megi eignast Innlent Rafmennt í samstarf og kaupir eignir þrotabúsins Innlent Tveir létust í skotárás á háskóla í Flórída Erlent Handtekinn grunaður um vasaþjófnað í miðborginni Innlent Hafa áhyggjur af því að sýn Veitna á Heiðmörk sé of þröng Innlent Kartöflugeymsla orðin að menningarhúsi Selfyssinga Innlent Fjórir létust þegar kláfferja hrapaði á Ítalíu Erlent Einhleypir karlmenn standa verst Innlent Fleiri fréttir Handtekinn grunaður um vasaþjófnað í miðborginni Engar reglur á Íslandi um hve mörg börn sæðisgjafar megi eignast Morðhótunum í garð kvenna fari fjölgandi Rafmennt í samstarf og kaupir eignir þrotabúsins Kartöflugeymsla orðin að menningarhúsi Selfyssinga Hafa áhyggjur af því að sýn Veitna á Heiðmörk sé of þröng Skortur á reglum um sæðisgjafir og menningarmiðstöð í kartöflugeymslu Háværar framkvæmdir stöðvaðar Hafþór keppir í Rússlandi: „Auðvitað veldur þessi ákvörðun ákveðnum vonbrigðum“ Rannsaka ólöglegt fiskeldi Áformin dragi verulega úr möguleikum til útivistar Geti haft í för með sér „ónæði, mengun og álag á fráveitu“ Ofbeldi í nánum samböndum og mótmæli á Tenerife Einhleypir karlmenn standa verst Misskilnings gætt um breytingar á lögum um innritun í framhaldsskóla Andstaða forstjóra Flugleiða við Cargolux réð því að hluturinn fór Bað lögreglu um að bjarga kettinum úr klóm nágrannans Vantar sjálfboðaliða til að laga 500 hjól handa efnaminni fjölskyldum „Umhverfi sem gerir eðlilegt og lögmætt flug að forréttindum stóru rekstraraðilanna“ Nafn mannsins sem lést í Garðabæ Af Alþingi til Fjallabyggðar „Vísbendingar um að fjárhagur sé að vænkast hjá borginni“ „Þeir voru fullir af hatri á meðan þeir lömdu mig“ Engin mygla í 200 húsum byggingameistara á Selfossi „Með allra besta móti miðað við árstíma“ Jónas Ingimundarson er látinn Búið að loka hringveginum vegna ófærðar Sex hópnauðganir til rannsóknar og lengri opnunartími sundlauga Von á fallegum, litríkum og kvikum norðurljósum í kvöld Sex hópnauðganir á borð lögreglu á árinu Sjá meira