Matur

Erfiðara að sulla niður bjór en kaffi

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Ef það væri kaffi í þessum glösum hefði meirað sullast niður.
Ef það væri kaffi í þessum glösum hefði meirað sullast niður.
Eðlisfræðingar frá Princeton-háskólanum í Bandaríkjunum hafa komist að því af hverju það er erfiðara að sulla niður bjór en kaffi. Í einföldu máli má segja að ástæðan fyrir þessari staðreynd sé froðan.

Froðan hefur áhrif á hversu miklar líkur það eru á að drykkur skvettist upp úr glasi þegar það er hrist.

Í kaffi er engin froða og því sullast það frekar niður.

Eins og sjá má í meðfylgjandi myndbandi notuðu vísindamennirnir háhraða myndavélar til þess að sjá nákvæmlega hvernig drykkirnir hegðuðu sér þegar ílátin sem þeir voru í voru hrist. Eðlisfræðingarnir komust að því að Guinnes bjór sullast síst; í honum er hlutfal froðu hæst.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.