Um reglulegan þingflokksfund sjálfstæðismanna var að ræða en andrúmsloftið var sérstakt í ljósi tíðinda dagsins. Aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra, Gísli Freyr Valdórsson, var fyrr í dag dæmdur í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að leka upplýsingum um hælisleitanda til fjölmiðla.
Á fundinum lýstu sjálfstæðismenn yfir fullum stuðningi við Hönnu Birnu til að starfa áfram í ríkisstjórn.

Aðspurður hvort allir þingmenn Sjálfstæðisflokks hefðu lýst yfir stuðningi við Hönnu Birnu svaraði Bjarni: „Það voru þingmenn sem tóku ekki til máls á fundinum. Við getum orðað það þannig.“
Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, lýsti yfir því í síðustu viku að hann væri þeirrar skoðunar að Hanna Birna ætti að víkja í ljósi þess að ráðherra bæri hlutlæga ábyrgð á aðstoðarmanni sínum. Í samtali við fréttastofu sagðist hann enn vera þeirrar skoðunar en hann sé þó samþykkur stuðningsyfirlýsingu sjálfstæðismanna.
Bjarni segist vera sammála því að ráðherra beri ábyrgð á pólitískt ráðnum aðstoðarmanni, en hvernig axla eigi ábyrgð sé annað mál. Hanna Birna hafi axlað sína ábyrgð með því að segja sig frá dómsmálunum. Hvort hún muni taka þau að sér aftur sé ekki ljóst á þessum tímapunkti, það sé mál sem hann og forsætisráðherra þurfi að taka til umræðu.
„Hún var ekki kosin oddviti okkar Sjálfstæðismanna og fyrsti þingmaður Reykjavíkinga af tilviljun. Það er vegna þess að hún er leiðtogi og stjórnmálaskörungur sem að á fullt erindi og þó að þetta mál sé áfall fyrir hana og okkur að þá er ekki tilefni fyrir ráðherrann til annars en að halda ótrauð áfram,“ sagði Bjarni.