
„Þegar litið er yfir árið vona ég að einhverjir skammist sín“

„Ráðherrann hefur barist um á hæl og hnakka í heilt ár, grafið undan trausti og trúverðugleika hverrar stofnunarinnar á fætur annarri, kastað skít og drullu yfir landlaust fólk, embættismenn og blaðamenn, allt með dyggum stuðningi tveggja stjórnmálaflokka sem gáfu valdníðslu hennar heilbrigðisvottorð, ýmist með beinum eða óbeinum hætti. Þegar litið er yfir árið vona ég að einhverjir skammist sín,“ bætir Jóhann Páll við
Hann segist vona að einhver lærdómur verði dreginn af málinu:
„Vonandi getur lekamálið orðið einhvers konar skólabókardæmi um skaðann sem stjórnmálamenn geta valdið með því að hlaupast undan pólitískri ábyrgð. Hanna Birna hefur stórskaðað stjórnsýsluna og vantraustið hefur eitrað út frá sér. Þetta eru afleiðingar þess að hún, og ýmsir af kollegum hennar, litu svo á að það væru einhvers konar mannréttindi hennar að fá að gegna ráðherraembætti fram í rauðann dauðann.“
Tengdar fréttir

Aðalmeðferð í lekamálinu frestað
Fjölmörg vitni voru boðuð í aðalmeðferðina, meðal annars Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra.

Birgitta kallar eftir afsögn Hönnu Birnu
„Þetta breytir í raun ekki neinu nema að það er komið í ljós það sem maður vissi, að þetta skjal kom frá henni eða hennar nánasta starfsliði.“

Lekamálið tekið til efnislegrar meðferðar
Frávísunarkröfu Gísla Freys Valdórssonar var hafnað í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Hanna Birna: Ákvörðunin persónuleg en ekki pólitísk
Hanna Birna Kristjánsdóttir hefur sagt af sér embætti innanríkisráðherra. Hún mun þó áfram sitja sem þingmaður og segist þannig ætla að axla ábyrgð.

Krefst þess að blaðamenn DV verði fangelsaðir
Þórey Vilhjálmsdóttir, aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra, fer fram á að tveir blaðamenn DV verði dæmdir til fangelsisvistar vegna fréttarskrifa um hana í júní, í tengslum við lekamálið svokallaða.

Þingmenn Sjálfstæðisflokksins koma af fjöllum
Óvissa innan Sjálfstæðisflokksins, en þar töldu menn að Hanna Birna hefði ekki verið á förum.

Felldi úr gildi reglugerð um þóknanir
Sama dag og Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra baðst undan skyldum sínum sem dómsmálaráðherra felldi hún úr gildi reglugerð frá árinu 2009 þar sem þóknanir verjenda og réttargæslumanna voru takmarkaðar voru við tíu þúsund krónur á klukkustund.

Hanna Birna hættir
Hanna Birna Kristjánsdóttir sagði af sér sem innanríkisráðherra í dag.

Alþjóðlegu blaðamannasamtökin fordæma kröfu Þóreyjar
"Að opinber starfsmaður sækist eftir því að blaðamenn verði fangelsaðir – eða refsingu af einhverju tagi – fyrir það sem virðist vera heiðarleg mistök gefur til kynna að hlutverk fjölmiðla, sem varðhundur almennings, er ekki virt."

Segir Eggert hafa dylgjað um sig
Jóhann Páll Jóhannsson, blaðamaður DV, segist hafa "verulegar efasemdir" um að Eggerti Skúlasyni "hafi gengið gott eitt til þegar hann útbjó skýrslu sína."

Helgi Hrafn: „Vona innilega að hún segi af sér“
Flestir þingmenn koma af fjöllum aðspurðir um væntanlega uppsögn innanríkisráðherra.

Skaðabótakröfum á hendur Gísla Frey vísað frá dómi
Ákæra saksóknara og bótakröfur á hendur Gísla Frey Valdórssyni, aðstoðarmanni innanríkisráðherra, skulu reknar sem sitt hvort dómsmálið. Þetta var niðurstaða héraðsdóms Reykjavíkur í morgun.