Myndin þykir allt í senn undurfurðuleg dystópía um menningarlega og pólitíska spennu sem einkennir Evrópu á margan hátt í dag. Myndin er meðal annars einstök að því leytinu til að aldrei hafa jafn margir hundar leikið í einni kvikmynd, en um tvö hundruð hundar gengust undir þjálfun til þess að leika í þessari athyglisverður kvikmynd. Kvikmyndagerðarfólkið fann hundana í hundaskýlum og eru þeir þar enn og bíða þess að vera ættleiddir.
Leikstjóri myndarinnar, Kornél Mundruczó, fékk bandaríska hundaþjálfarann, Teresu Miller, til þess að þjálfa hundana, en hún er líklega frægust fyrir að þjálfa hundana fyrir þýsku lögregluþættina Rex. Þá þjálfaði hún einnig hundana fyrir hryllingsmyndina Cujo sem var byggð á samnefndri sögu Stephen Kings.
Hundarnir stóðu sig vel í sínum hlutverkum, og úr varð að aðalhundarnir, fengu sérstök dómaraverðaun á síðustu Cannes hátíð, þar sem myndin fékk raunar verðlaun í flokknum Un Certain Regard. Myndin er er framlag Ungverjalands til Óskarsverðlauna í ár.