Snickers-smákökur
4 bollar hveiti1 tsk matarsódi
1 tsk lyftiduft
2 tsk maizena
3/4 tsk salt
1 1/4 bolli brúnað smjör
1/4 bolli mjúkur rjómaostur
1 1/2 bolli púðursykur
1 bolli sykur
2 egg
1 msk vanilludropar
1 bolli súkkulaðibitar
1/2 bolli 60% súkkulaðibitar
1/2 bolli Snickers, saxað (má vera meira)
24 karamellur, skornar í helminga (eða karamellusósa)
Byrjið á að brúna smjörið. Bræðið smjörið yfir miðlungshita og leyfið því að sjóða í pottinum þangað til það verður brúnt og lyktar eins og hnetur. Setjið í skál og kælið. Blandið hveiti, matarsóda, lyftidufti, maizena og salti saman í skál og setjið til hliðar. Blandið smjöri, rjómaosti, púðursykri og sykri saman í skál og hrærið í 3 til 4 mínútur. Bætið eggjunum saman við, einu í einu og vanilludropunum. Blandið þurrefnunum varlega saman við. Blandið súkkulaðinu og Snickers saman við með sleif. Kælið deigið í ísskáp yfir nótt.
Hitið ofninn í 180°C og setjið bökunarpappír á ofnplötur. Búið til kúlur úr deiginu og setjið karamellu í miðjuna eða karamellusósu. Fletjið kökurnar aðeins út og setjið á ofnplötu. Bakið í 10 til 12 mínútur.
Fengið hér.