Hér er á ferðinni vinningsréttur úr nýrri matreiðslubók Berglindar Guðmundsdóttur, GulurRauðurGrænn&salt – Fljótlegir réttir fyrir sælkera. Í henni má finna uppskriftir að hollum mat fyrir fólk sem elskar að borða góðan mat en hefur ekki mikinn tíma til að standa lengi í eldhúsinu. Kjúklingarétturinn er með beikoni, döðlum og hvítlauk. Hann er einfaldur í gerð og smellpassar í helgarmatinn.
Gratíneraður kjúklingur með beikoni, döðlum og hvítlauk
Uppskrift
Fyrir 4-5
Eldunartími 30 mínútur
1 heill kjúklingur, eldaður
150 g spínat
100 g beikon, smátt skorið
70 g döðlur, smátt skornar
4 stór hvítlauksrif, pressuð
1 msk. óreganó þurrkað
3 dl vatn
2 dl matreiðslurjómi
3 msk. rjómaostur
1 Knorr-kjúklingateningur
½ Knorr-grænmetisteningur
Rifinn ostur
Aðferð
1. Brúnið beikonið á pönnu.
2. Bætið hvítlauknum út á pönnuna og steikið með beikoninu í örskamma stund, setjið þá döðlurnar út í ásamt vatninu, óreganói og teningunum. Látið malla saman svolitla stund.
3. Setjið spínatið í botninn á eldföstu móti og stráið kjúklingnum þar yfir.
4. Bætið matreiðslurjómanum og rjómaosti út á pönnuna og sjóðið niður sósuna í um 5 mín. Þegar sósan er tilbúin, hellið þá þessari gourmet-blöndu yfir kjúklinginn og passið að döðlurnar og beikonið dreifist jafnt yfir kjúklinginn.
5. Setjið því næst rifna ostinn yfir allt saman og bakið í ofni þar til osturinn er orðinn gylltur og fallegur.
