Myndin 12 Years a Slave fjallar um Solomon Northup sem fæddist frjáls maður og vann ýmis verkamannastörf í New York til að sjá fjölskyldu sinni farborða. Solomon var einnig lunkinn fiðluleikari og veturinn 1841 komu tveir menn að máli við hann og vildu ráða hann sem undirleikara í leiksýningu. Solomon stökk á tækifærið og fylgdi þeim til Washington en þar yfirbuguðu mennirnir hann og seldu hann í þrældóm. Sá þrældómur átti eftir að vara næstu tólf árin. Myndin er byggð á samnefndri sjálfsævisögu Solomons Northup sem kom út árið 1853 og átti dyggan þátt í því að þrælastríðið braust út í Bandaríkjunum árið 1861.
Margir hafa borið myndina saman við aðrar epískar dramamyndir eins og Schindler‘s List og The Passion of Christ sem skiluðu fúlgum fjár í kassann þrátt fyrir að fjalla um mjög erfið málefni. Myndin var frumsýnd á Telluride-kvikmyndahátíðinni 30. ágúst í fyrra og hefur skilað rúmlega fimmtíu milljónum dollara í kassann í miðasölutekjum, tæplega sex milljörðum króna.
Þá hefur myndin fengið alls kyns ókeypis auglýsingu hjá stjörnum á borð við Kanye West og Sean Combs. Sá síðarnefndi hvatti alla til að sjá myndina með þessum orðum í myndbandi: „Þessi mynd er átakanleg en samkvæm sannleikanum og hún er hluti af heilunarferlinu. Ég bið ykkur öll um að fara með börnin ykkar og alla að sjá hana. Þið verðið að sjá hana til að skilja, svo þið getið byrjað að skilja.“
Með aðalhlutverk í myndinni fara Chiwetel Ejiofor, Michael Fassbender, Benedict Cumberbatch, Paul Dano, Paul Giamatti, Lupita Nyong‘o, Sarah Paulson, Brad Pitt og Alfre Woodard en henni er leikstýrt af Steve McQueen.