
Sindri á sér nokkra uppáhaldshluti sem hann var lengi búinn að hafa augastað á áður en hann eignaðist þá. „Ég hef svo sem ekkert endilega mikið vit á hönnun eða því nýjasta sem er í tísku en ég á nokkra uppáhaldshluti og númer eitt, tvö og þrjú er án efa Köngullinn eða Artichoke eftir Poul Henningsen. Þetta er ekki aðeins falleg hönnun heldur er lýsingin einnig falleg. Peran sést aldrei, sama hvar maður stendur og því fer ljósið aldrei beint í augun á manni.“

„Eames-stóllinn er einnig í uppáhaldi. Þarna er ekki aðeins um að ræða fallegan stól, heldur einnig sígilda, fallega hönnun. Þægindin eru einnig til staðar en útlit og þægindi fara alls ekki alltaf saman þegar kemur að stólum og sófum, því miður. Í þessum stól gæti maður sofið heila nótt, jafnvel lengur,“ segir hann.

Sindri nefnir einnig Pantella-lampann eftir Verner Panton sem uppáhaldshlut. „Lampar eru í uppáhaldi hjá mér og sérstaklega Pantella-lampinn en á honum er lýsingin falleg sem og útlitið, hvort tveggja skiptir máli.“
Næst á dagskrá hjá Sindra er að fá sér góðan sjónvarpssófa. „Því miður finnst mér sjaldnast fara saman að sjónvarpssófar séu bæði fallegir og þægilegir en vonandi kemur að því að ég finni einn slíkan.“
Heimsókn er á dagskrá á Stöð 2 á miðvikudögum kl. 20.05.