Sýningin Stóru börnin eftir Lilju Sigurðardóttur hlaut Grímuverðlaunin í ár sem leikrit ársins. Sýningin var flutt af leikhópnum LabLoki í Tjarnarbíói í vetur og fjallar um konu sem býður upp á þjónustu fyrir einstaklinga sem vilja upplifa það að ganga aftur í barndóm.
Þá hlutu bæði Hilmir Snær Guðnason og Margrét Vilhjálmsdóttir verðlaun fyrir leik í aðalhlutverki fyrir frammistöðu sína í verkinu Eldraunin eftir Arthur Miller, sem sýnt var í Borgarleikhúsinu. Hvorki Hilmir Snær né Margrét gátu tekið á móti verðlaununum en sendu fulltrúa í sinn stað, Hilmir Snær sendi dóttur sína og Margrét leikkonuna Tinnu Gunnlaugsdóttur.
Það var svo leikkonan Kristbjörg Kjeld sem hlaut heiðursverðlaun ársins fyrir ævistarf. Það var Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra sem afhenti henni verðlaunin við mikið lófaklapp áhorfenda.
Þess má geta að Kristbörg uppskar mikinn hlátur fyrr um kvöldið er hún veitti Margréti verðlaun fyrir leik í aðalhlutverki og var næstum því búin að tilkynna nafn sigurvegarans án þess að lesa upp nöfn tilnefndra.
Verðlaunin á hátíðinni skiptust þannig:
Ragnheiður
Sýning ársins 2014
eftir Gunnar Þórðarson og Friðrik Erlingsson
Íslenska óperan
Stóru börnin
Leikrit ársins 2014
eftir Lilju Sigurðardóttur
Lab Loki

Leikstjóri ársins 2014
fyrir Gullna hliðið
Leikfélag Akureyrar
Hilmir Snær Guðnason
Leikari ársins 2014 í aðalhlutverki
fyrir Eldraunina
Þjóðleikhúsið
Margrét Vilhjálmsdóttir
Leikkona ársins 2014
í aðalhlutverki
fyrir Eldraunina
Þjóðleikhúsið
Bergur Þór Ingólfsson
Leikari ársins 2014 í aukahlutverki
fyrir Furðulegt háttalag hunds um nótt
Borgarleikhúsið

Leikkona ársins 2014 í aukahlutverki
fyrir Óskasteina
Borgarleikhúsið
Egill Ingibergsson
Leikmynd ársins 2014
fyrir Gullna hliðið
Leikfélag Akureyrar
Helga Mjöll Oddsdóttir
Búningar ársins 2014
fyrir Gullna hliðið
Leikfélag Akureyrar
Gunnar Þórðarson
Tónlist ársins 2014
fyrir Ragnheiði
Íslenska óperan
Vala Gestsdóttir og Kristinn Gauti Einarsson
Hljóðmynd ársins 2014
fyrir Litla prinsinn
Þjóðleikhúsið
Björn Bergsteinn Guðmundsson og Petr Hloušek
Lýsing ársins 2014
fyrir Furðulegt háttalag hunds um nótt
Borgarleikhúsið
Elmar Gilbertsson
Söngvari ársins 2014
fyrir Ragnheiði
Íslenska óperan

Dansari ársins 2014
fyrir F A R A N G U R
Íslenski dansflokkurinn
Valgerður Rúnarsdóttir
Danshöfundur ársins 2014
fyrir F A R A N G U R
Íslenski dansflokkurinn
Söngur hrafnanna eftir Árna Kristjánsson
útvarpsverk ársins 2014
Leikstjórn Viðar Eggertsson
Útvarpsleikhúsið á RÚV
Tyrfingur Tyrfingsson – leikskáld
Sproti ársins 2014
fyrir Bláskjá
Óskabörn ógæfunnar og Borgarleikhúsið
Hamlet litli eftir Berg Þór Ingólfsson
Barnasýning ársins 2014
Borgarleikhúsið
Kristbjörg Kjeld
Heiðursverðlaun Leiklistarsambands Íslands 2014