Iceland Airwaves-tónleikahátíðin gekk í garð í dag og verður því mikið um að vera í bænum.
Passar á hátíðina seldust upp í byrjun október en tónlistaráhugamenn sem nældu sér ekki í passa í tæka tíð þurfa ekki að örvænta þar sem hægt verður að sjá 675 „off-venue“-tónleika víðs vegar um borgina, þar sem ekkert kostar inn. (Þess skal þó getið að hægt verður að kaupa miða á lokatónleika hátíðarinnar með Flaming Lips og War on Drugs í takmörkuðu upplagi.)
Fréttablaðið tók saman nokkra áhugaverða off-venue-viðburði fyrir þá sem voru svo óheppnir að missa af miðum.
Berndsen á góðri stund.Fréttablaðið/MagnúsSýningin Horfðu í ljósið: Augnablik frá Iceland Airwaves verður opin á Kexi Hosteli yfir hátíðina. Sýningin samanstendur af ljósmyndum af mögnuðum Airwaves-augnablikum eftir helstu tónleikaljósmyndara Reykjavíkur.
Reikna má með því að einhverjir Airwaves-gestir geti fundið myndir af sjálfum sér í góðu stuði og nokkrum árum yngri á veggjum Kexins.
Jaakko Eino Kalevi.Nordic Playlist er vinsæl síða sem fær fræga norræna tónlistarmenn til að gera lagalista með skandinavískri tónlist. Frá föstudegi til sunnudags verður síðan með sérstakan „pop-up“-bar að Laugavegi 91.
Þar verður meðal annars hægt að sjá tónlistarmennina Jakko Eino Kalevi frá Finnlandi, Kasper Björke frá Danmörku og sveitina BYRTA frá Færeyjum.
Mugison.Fréttablaðið/HaraldurÚtvarpsstöðin KEXP frá Seattle í Bandaríkjunum verður með beina útsendingu og tónleika á Kexi Hosteli frá miðvikudegi til laugardags. Útvarpsstöðin hefur sýnt hátíðinni mikinn áhuga undanfarin ár.
Í dag, miðvikudag, verður hægt að sjá Kiasmos, Sóleyju, Uni Stefson, Oyama og Mugison troða upp, annaðhvort á Kexinu eða í beinni útsendingu á KEXP.
Kælan MiklaFréttablaðið/ValliHópurinn Stelpur rokka! sem hefur haldið úti rokksumarbúðum fyrir stelpur verður með sérstaka off-venue tónleika á Lofti Hosteli á fimmtudaginn. Þar koma fram Kælan mikla, Rachel Sermanni frá Skotlandi, Adda, Margrét Arnar og Boogie Trouble.