Meðal þeirra sem hlaut verðlaun var Írinn Andrew Hozier-Byrne sem er yfirleitt kallaður Hozier. Lag hans, Take Me To Church, var valið besta erlenda lag ársins. Hozier gat ekki verið viðstaddur athöfnina þar sem hann er nú á tónleikaferðalagi um Bandaríkin. Hann lét því nægja að senda kveðju til aðdáenda hér á landi.
Hozier var meðal þeirra listamanna sem komu fram á Iceland Airwaves hátíðinni síðasta ár og í lok kveðjunnar segir hann að hann geti ekki beðið eftir því að koma hingað aftur.
Kveðju Hozier til Hlustendaverðlaunanna má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.