Klemenz telur að stytta mætti umsóknartímann með breyttu verklagi innan Útlendingastofnunar, einfaldara umsóknarferli og betri upplýsingagjöf milli Útlendingastofnunar og annarra opinberra stofnanna. „Hefðbundin umsókn þarfnast athygli starfsmanna í eina til fjórar klukkustundir. Því er raunveruleg vinnsla er einungis brotabrot af þeim tíma sem umsóknin er inni hjá stofnuninni,“ segir Klemenz.
Einfaldari eyðublöð myndu breyta miklu
Klemenz telur að með því að einfalda umsóknareyðublöð mætti koma í veg fyrir að endursenda þyrfti stóran hluta umsókna. „Í núverandi mynd er það þannig að það fylla allir út sama eyðublaðið, óháð því hver tilgangur dvalar er. Þannig þarf námsmaður sem sækir um framlengingu á milli haustannar og vorannar í háskóla að fylla út sama eyðublað og nýr umsækjandi sem sækir hér um dvalarleyfi á forsendum mannúðarástæðna, en þetta eyðublað er langt frá því að vera einfalt,“ segir Klemenz. Meðal annars vegna þess hve flókið eyðublaðið er þarf að endursenda þriðjung um umsókna því þær teljist ófullnægjandi. „Það getur verið verið svo lítið sem að undirskrift umsækjanda vanti á umsóknin,“ segir Klemenz.
Sjá einnig: Þriggja barna móðir beðið í tvö ár eftir svörum
Að sögn Klemenzar tefur það umsóknarferlið verulega að endursenda þurfi umsóknir. „Mikill tími fer í það að útbúa bréfin til að kalla eftir gögnum, auk þess sem þær umsóknir minnka yfirsýn starfsmanna yfir verkefni. Eftir ákveðinn tíma fara umsækjendur að forvitnast um stöðu sinnar umsóknar, hringja eða mæta á svæðið til að athuga hvort að það vanti einhver frekari gögn, hvað sé langt þar til þeir megi búast við niðurstöðu o.s.frv. en mikill tími og vinna fer í að svara slíkum fyrirspurnum,“ segir hann. Yrði þetta lagað mætti stytta umsóknarferlið verulega til hagsbóta fyrir umsækjendur.

Klemenz segir ríkisborgara utan EES og EFTA þurfa að sækja um dvalarleyfi hér á landi ætli þeir að dvelja hér á landi lengur en 3 mánuði. Hinsvegar hafir ritgerðin ekki tekið til flóttamanna eða hælisleitenda. En markmið hafi verið sett síðastliðið sumar að stytta umsóknartíma í 90 daga fyrir flóttamenn og hælisleitendur en umsóknir þeirra hafa oft verið tvö til þrjú ár til meðferðar hjá Útlendingastofnun.
Sjá einnig: Biðin reynist erfiðust fyrir hælisleitendur
Hann segir þó ekki endilega við starfsmenn Útlendingastofnunar að sakast. Þeir séu allir af vilja gerðir til að hjálpa til að klára umsóknir sem fyrst. Hinsvegar sé mikið álag á starfsmönnunum sem gæti valdið því að lítill tími til að skoða hvernig hægt væri að bæta verklag til þess að stytta umsóknartíma.