Dekk frá Goodyear framleiðir rafmagn Finnur Thorlacius skrifar 6. mars 2015 15:23 Spennandi nýjungar frá Goodyear.
Dekk á bílum hitna talsvert við akstur og sú orka hefur hingað til farið til spillis. Það gæti þó verið að breytast því Goodyear er nú að kynna dekk á bílasýningunni í Genf sem endurheimtir þessa orku og hleður rafgeyma bílsins með henni. Þræðir liggja undir barða dekksins sem drekka í sig hitann frá viðnáminu í barðanum. Önnur uppfinning frá Goodyear er einnig kynnt í Genf. Hana hafa þeir nefnt Triple Tube. Það vitnar til þess að í nýþróuðu dekki frá fyrirtækinu eru þrjár slöngur, tvær á jöðrum dekksins og eitt í miðjunni. Innbyggð pumpa stjórnar þrýstingnum í hverri slöngu og skynvætt kerfi stjórnar loftþrýstingnum með tilliti til aðstæðna. Þetta er til þess gert að auka öryggi og akstureiginleika bíla og minnka eyðslu í leiðinni. Ef bíll er á mikilli ferð eykst þrýstingurinn í dekkjunum til að minnka viðnám. Ef bíllinn er á ferð þar sem mikið er um beygjur hleypir kerfið úr ystu slöngunni til að auka getu bílsins til að beygja. Ef blautt er bregst kerfið við með því að auka þrýstinginn í miðjuslöngunni svo hætta minnki á því að bíllinn fljóti upp í bleytu.
Mest lesið Skiljanlegt að málið veki upp miklar og erfiðar tilfinningar Innlent Munu tryggja aðgengi að kaffistofunni sem er nú bænahús Innlent Hart tekist á um umdeildar auglýsingar SFS Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið sem hann seldi Innlent Fjöldi herskipa við Reykjavíkurhöfn Innlent Hátt settur herforingi fórst í bílsprengju nærri Moskvu Erlent Rifta samningum vegna gríðarlegrar fækkunar hælisleitenda Innlent Undarlegt að „stórhættulegir menn“ gangi lausir Innlent Með nettengingu í trássi við öryggisreglur til að komast inn á Signal Erlent Byrjaður að selja varning merktan „Trump 2028“ Erlent