Ég nýt þess að fá mér góða deserta og slæ aldrei hendinni á móti einum slíkum. Þegar ég vil eitthvað létt og frískandi í desert þá er þessi jógúrtís fullkominn.
Jógúrtís með mangó og mintu
250 g frosið mangó
1 msk. Fljótandi hunang
Rifinn börkur og safi af ½ límónu
Nokkur mintulauf, 6 - 7
150 g grískt jógúrt
Dökkt súkkulaði, til skrauts
Aðferð:
Maukið mangóið í matvinnsluvél, bætið jógúrti, mintu, límónubörk og hunangi þar til réttri áferð er náð. Setjið í form og inn í frysti í lágmark klukkustund. Berið fram með dökku súkkulaði og ferskum berjum.