Katrín Jakobsdóttir: „Verið að brjóta stjórnskipunarhefð“

„Með því að gera þetta með þessum hætti, að fara ekki inn með tillögu til þingsins, þá eru þeir að brjóta þá stjórnskipunarhefð sem við höfum hér, að þegar Alþingi er búið að samþykkja stefnumótun í utanríkismálum þá þarf nýja samþykkt þingsins til að breyta henni.“
Katrín segist ekki geta dregið aðra ályktun en þá að ríkisstjórnin þori ekki með málið inn á þingið. „Og þori ekki í þetta samtal við þingið og þori ekki að vera minnt á kosningaloforð sín um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald málsins. Þarna er verið að brjóta hefðir og við munum klárlega fara yfir þetta í framhaldinu inni á þingi því við hljótum að gera þá kröfu að eðlilegum vinnureglum sé sinnt í svona málum.“
Hún segir málið lýsandi fyrir vandræðagang ríkisstjórnarinnar. „Það er stöðugt verið að bakka með mál. Ríkisstjórnin lagði þetta mál fyrir þingið í fyrra, meðal annars vegna þess að hún sagði mikilvægt að þessi ákvörðun yrði tekin af þinginu. Svo er greinilega búið að skipta um stefnu í því, svo manni finnst þetta alls ekkert traustvekjandi.“
Tengdar fréttir

Mótmæli boðuð á Austurvelli klukkan 20: "Íslendingar láta ekki bjóða sér þetta“
Jóhannes Benediktsson, einn aðstandenda mótmælanna, segir mikla reiði ríkja vegna ákvörðunar ríkisstjórnarinnar.

„Versta atlagan að fullveldi Alþingis í lýðveldissögunni“
Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi utanríkisráðherra, segir ríkisstjórnina skíthrædda við eigin þjóð.

„Háðulegast af öllu að ríkisstjórnin reyni nú að knýja fram stefnubreytingu í bakherbergjum“
Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, segir að ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að Ísland sé ekki lengur umsóknarríki að ESB hafi enga efnislega þýðingu þar sem í gildi sé þingsályktun um aðildarviðræður.

Ísland ekki lengur umsóknarríki ESB
Ríkisstjórnin hefur samþykkt að hún hafi ekki í hyggju að taka upp aðildarviðræður við Evrópusambandið á nýjan leik.

Sendinefnd ESB á Íslandi: Engin viðbrögð að svo stöddu
Búist er við viðbrögðum á morgun eða á allra næstu dögum.

„Þetta er örugglega fertugsafmælisgjöf Sigmundar Davíðs“
Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata, segir ríkisstjórnina sniðganga Alþingi með ákvörðun sinni um að Ísland sé ekki lengur umsóknarríki að ESB.