Sátt náðist í máli Tony Omos gegn Gísla Frey Valdórssyni, fyrrverandi aðstoðarmanni innanríkisráðherra, í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Omos hafði krafist fimm milljóna króna úr hendi Gísla Freys, en að sögn lögmanns Omos, Stefáns Karls Kristjánssonar, er upphæð skaðabótanna trúnaðarmál. Stundin greinir þó frá því að upphæðin sé innan við ein milljón króna.
Gísli Freyr hefur því nú náð sáttum við aðilana þrjá sem nafngreindir voru í minnisblaði innanríkisráðuneytisins í tengslum við lekamálið svokallaða. Ekki hefur verið greint frá því hversu háar bætur samið var um, en Evelyn Glory Joseph fór fram á 4,5 milljónir og íslensk kona fram á 2,5 milljónir.
Tony Omos stendur enn í málaferlum við íslenska ríkið.
Tony Omos og Gísli Freyr ná sáttum

Tengdar fréttir

Segir ákæruvaldið hafa lekið gögnum til fjölmiðla
Verjandi Hannesar Smárasonar gagnrýnir málsmeðferð ákæruvaldsins og segir að hún hafi ekki verið í samræmi við Mannréttindasáttmála Evrópu um réttláta málsmeðferð.

Tony Omos mun áfrýja til Hæstaréttar
Úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Tonys Omos gegn Útlendingastofnun og íslenska ríkinu verður áfrýjað til Hæstaréttar.

Hvorki Sigríður Björk né Gísli Freyr hafa sent Persónuvernd tölvupóstinn
Finnst hvorki hjá innanríkisráðuneytinu né embætti lögreglustjóran á Suðurnesjum

Sáttaumleitanir enn ekki borið árangur
Sáttaumleitanir í máli Evelyn Glory Joseph gegn Gísla Frey Valdórssyni, fyrrverandi aðstoðarmanni innanríkisráðherra, hafa ekki borið árangur.

Omos áfrýjar til Hæstaréttar
Tony Omos hefur áfrýjað máli sínu gegn Útlendingastofnun og íslenska ríkinu til Hæstaréttar Íslands.