Matur

Bruschetta með tómötum og hvítlauksosti

Bruschetta með tómötum og hvítlauksosti
Bruschetta er afar vinsæll smáréttur víða um heim, það er bæði hægt að bera hann fram sem forrétt eða þá sem léttan aðalrétt. 
 
1 gott snittubrauð 
ólífuolía
1 hvítlauksrif 
 
1 askja kokteiltómatar
2 marin hvítlauksrif
1 msk ólífuolía
1 msk balsamik edik
smátt söxuð fersk basilíka, magn eftir smekk
½ hvítlauksostur, smátt skorinn
salt og nýmalaður pipar 
 
Aðferð: Hitið ofninn í 180°C. Skerið snittubrauðin í sneiðar og leggið á pappírsklædda ofnplötu, sáldrið olíu yfir brauðsneiðarnar og bakið í ofni í nokkrar mínútur. Þegar brauðið er tilbúið og orðið stökkt nuddið sárinu á hvítlauksrifinu ofan á hverja brauðsneið. 
 
Skerið tómata í tvennt og skafið innan úr þeim, hvítlauksosturinn er skorinn í bita og hvítlaukurinn pressaður. Blandið öllu saman ásamt basilíku, olíu, balsamik edik og salti og nýmöluðum pipar. Setjið blönduna ofan á hverja brauðsneið og berið strax fram. 
 
Fylgist með Matargleði Evu á fimmtudagskvöldum á Stöð 2. 

 








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.