1 laxaflak
gróft sjávarsalt
nýmalaður svartur pipar
hunangs djion sinnep
Hnetuhjúpur
100 g hnetur t.d. hesli og pekanhnetur
4 msk brauðrasp
steinselja
börkur af einni sítrónu
1 msk olía
2 hvítlauksrif, fínt rifnir
sjávarsalt
Aðferð
- Hitið ofninn í 180°C.
- Snyrtið laxaflakið og setjið í eldfast mót eða á pappírsklædda bökunarplötu.
- Kryddið laxinn til með salti og pipar og penslið sinnepinu yfir hann. Dreifið hnetuhjúpnum yfir og þjappið honum vel ofan í sinnepið með höndunum, þannig að hann haldist vel á. Bakið í 15 mínútur. Takið þá laxinn út úr ofninum og látið hann standa í 5 mínútur áður en þið berið hann fram en þannig eldast hann aðeins lengur.
- Berið laxinn fram með jógúrtdressingu og fersku salati.
Jógúrtdressing
2 dl grískt jógúrt
1 hvítlauksgeiri
1 msk hunangs dijon sinnep
smátt söxuð steinselja
salt og pipar
Aðferð
Blandið öllu saman og bragðbætið með salti og pipar.
Þið finnið fleiri uppskriftir frá Evu Laufeyju hér.