Matur

Vala Matt kynnist taílenskri matargerð

visir.is/shutterstock

Í síðasta þætti Sælkeraheimsreisunnar fékk Vala Matt að kynnast matargerð frá Tælandi og heimsótti þær Warapon Chanse og Patcharee Raknarong. 

Ljúffengar vefjur með grænmeti og bragðmiklu karrímauki

1 pakki hrísgrjónablöð  (rice paper)

1 bolli soðnar risarækjur

Vorlaukur

Kóríander

Mangó

Rauð eða græn paprika

Kjúklingur eða annað kjöt, valfrjálst



Aðferð:

Skerið grænmetið í þunna strimla ca 10 cm langa. Setjið hrísgrjónablöðin í kalt vatn þannig að vatnið fljóti alveg yfir í 20 sek eitt og eitt í einu og þerrið örlítið á viskastykki. Smyrjið hrísgrjónablöðin með karrímaukinu og raðið grænmeti, vorlauk og kóríander á miðjuna á hrísgrjónablöðunum og rúllið upp.

Kraftmikið karrímauk

15 stk chili pipar, bæði grænn og rauður

1 tsk salt

1 msk Galangal

1 msk Sítrónugras

½ tsk Kaffir lime eða lime lauf

1 msk hvítlaukur

1 msk laukur

1 tsk rækjumauk

1 tsk Kóríanderrót



Aðferð:

Blandið öllu saman í matvinnsluvél og smyrjið inn í vefjurnar.

Sælkeraheimsreisan er á dagskrá á þriðjudagskvöldum á Stöð 2.  








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.