Svona var stemningin þegar Leiknir komst upp | Fyrsti heimaleikurinn í kvöld Tómas Þór Þórðarson skrifar 11. maí 2015 12:00
Leiknir spilar sinn fyrsta heimaleik í Pepsi-deild karla í fótbolta í kvöld þegar liðið tekur á móti ÍA í nýliðaslag í annarri umferð Pepsi-deildar karla í fótbolta klukkan 19.15 í kvöld. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport í kjölfar hans verða Pepsi-mörkin á dagskrá klukkan 22.00. Spennan fyrir leiknum er mikil í Breiðholtinu og má búast við metfjölda áhorfenda á Leiknisvöllinn, en mæting Breiðhyltinga á Hlíðarenda í fyrsta leikinn gegn Val var stórgóð. Gleðin hefur verið mikil í efra Breiðholti síðan 4. september í fyrra þegar liðið tryggði sér sæti í Pepsi-deildinni í fyrsta skipti í sögu félagsins. Um 1.000 áhorfendur mættu á 2-1 sigurleik gegn Þrótti og hljóp slatti af þeim inn á völlinn til að fagna með hetjunum sínum þegar flautað var til leiksloka. Það var alvöru stemning. Frétt Harðar Magnússonar um Leikinn og viðbrögð þjálfarans, Freys Alexanderssonar, má sjá í spilaranum hér að ofan. Leiknir tapaði aðeins tveimur leikjum í 1. deildinni á síðustu leiktíð en það var gegn ÍA í bæði skiptin. Nú er bara spurning hvort Garðar Gunnlaugsson haldi áfram að hrella Leiknismenn, en hann skoraði öll þrjú mörkin gegn Leikni síðasta sumar. Garðar skoraði tvö mörk í 2-1 sigri Skagamanna á Leikni á heimavelli og eina markið úr vítaspyrnu á 90. mínútu í seinni Leiknum í Breiðholtinu.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Schumacher skrifaði nafnið sitt á hjálm Formúla 1 Hundur hljóp inn á völlinn í leik Vestra og FH Íslenski boltinn Van Dijk skoraði undir lokin og Liverpool með níu fingur á bikarnum Enski boltinn Leik lokið: Vestri - FH 1-0 | Daði Berg hetja Vestra Íslenski boltinn Átti bestu byrjun á hring í sögu Masters Golf „Hann hefði getað fótbrotið mig“ Enski boltinn „Vandamálið er mín megin og ég verð að bæta mig“ Formúla 1 Onana ekki með gegn Newcastle Enski boltinn „Eins og ég hafi aldrei keyrt Formúlu 1 bíl“ Formúla 1 Fjórði sigur Úlfanna í röð Enski boltinn Fleiri fréttir Leik lokið: Vestri - FH 1-0 | Daði Berg hetja Vestra Hundur hljóp inn á völlinn í leik Vestra og FH VAR í Bestu deildina? Völsungur vann vítaspyrnukeppni á afmælisdeginum Adam Ægir á heimleið Formaðurinn ósáttur við tveggja leikja bannið og aganefnd Njarðvík og ÍR fögnuðu bæði tveimur sigrum í kvöld Uppgjörið: Breiðablik - Valur 0-1 | Valskonur meistarar meistaranna Blikum spáð öðrum titli en stutt stopp hjá nýliðunum Fjögur prósent eru bara í fótbolta og langflestar vilja VAR og gervigras Svona var fundurinn fyrir Bestu deild kvenna Besta-spáin 2025: Sama húsnæði, sama starfsemi Besta-spáin 2025: Sóknarhugur á Samsung Leikmenn sem gætu blómstrað á nýjum stað Bjarki gerði allt brjálað á Skaganum með því að kyssa KR-merkið Sorg og óvissa en ljós við enda ganganna Elín Metta má spila með Val Fyndnar hárgreiðslur lykillinn að betri mætingu Besta-spáin 2025: Loftið verður að haldast í blöðrunni Besta spáin 2025: Krókur á móti bragði „Þið eruð ekki nógu duglegar að tuða í dómurunum“ Besta-spáin 2025: Þurfa aftur fimm réttar og jóker Besta-spáin 2025: Stoppa stutt við eftir langa eyðimerkurgöngu Aron Elís með slitið krossband Aron í tveggja leikja bann Stúkan segir ekki rautt og framkvæmdastjórinn æfur: „Má leggja hana niður“ Stórir draumar í Laugardalnum: „Allir vilja að Þróttur fari sem hæst“ „Vælum og öskrum þó við meiðum okkur ekki neitt“ Sjáðu markið umdeilda í Garðabæ: „Ekki var hann hræddur við Örvar?“ „Bæði svekktur en líka stoltur“ Sjá meira