Meiðsli Garðars Jóhannssonar, framherja Stjörnunnar í Pepsi-deild karla í fótbolta, eru alvarlegri en fyrst var haldið. Garðar hefur verið frá síðan hann fór meiddur af velli gegn Leikni í Borgunarbikarnum í byrjun mánaðarins.
„Ég sleit nárann. Einn vöðvinn af þremur í náranum slitnaði alveg frá,“ segir Garðar í samtali við Fréttablaðið.
„Það var kippt í mig þarna undir lok leiksins þannig að ég missti jafnvægið og datt á rassinn. Þar fór nárinn.“
Garðar segir lækna hafa reiknað með að hann yrði frá í 6-10 vikur, en Stjörnumenn voru að vonast eftir honum um miðjan júlí.
„Ég held að þetta verði nú aldrei sex vikur. Nárinn getur oft verið mjög erfiður. Ég bara veit ekki hvenær ég get byrjað aftur. Fyrst átti ég að fara í aðgerð en svo vildu læknarnir ekki að ég færi í aðgerð. Þetta er voðalega skrítið allt saman,“ segir Garðar.
Framherjinn öflugi, sem hefur spilað sex leiki í Pepsi-deildinni, þar af fimm sem varamaður, er alveg búinn undir það að spila ekki meira á þessari leiktíð. Meiðslin eru það slæm.
„Það gæti alveg farið svo. Það yrði auðvitað gaman að spila aftur á þessu tímabili en ég geri mér engar vonir. Ef ég næ að spila eitthvað þá er það bara bónus,“ segir hann, en Garðar er ekkert að æfa með Stjörnunni. Hann getur ekki einu sinni hlaupið.
„Ég get ekkert gert. Það er enginn kraftur í löppinni. Þetta á víst að geta gróið saman án aðgerðar þannig ég er bara í meðhöndlun þessar vikurnar,“ segir Garðar Jóhannsson við Fréttablaðið.
Garðar var einnig mikið meiddur á síðustu leiktíð og spilaði þá aðeins níu leiki og skoraði tvö mörk
Garðar líklega úr leik
Tómas Þór Þórðarson skrifar

Mest lesið



Arnór Borg í Vestra og Fram fann markmann
Íslenski boltinn

„Þetta er úrslitakeppnin og hlutir gerast“
Körfubolti

Valur í kjörstöðu gegn ÍR
Handbolti


Víkingur fær leikmann úr dönsku B-deildinni
Íslenski boltinn

Mark snemma leiks gerði gæfumuninn
Fótbolti

Upgjörið: Breiðablik - Fram 7-1 | Upprúllun í Kópavogi
Íslenski boltinn
