Skemmtileg bók um silungsveiðar á Íslandi Karl Lúðvíksson skrifar 19. júní 2015 07:59
Veiðimenn eyða jafnan löngum vetrarkvöldum í að lesa veiðibækur og fagna útgáfu bóka um veiði. Mál og Menning var að gefa út bókina "Vatnaveiði - árið um kring" sem er reglulega skemmtilegur lestur enda bókin full af góðum ráðum til handa veiðimannsins. Í þessari gagnlegu handbók um silungsveiði á Íslandi er farið yfir heilt ár í lífi veiðimanns, allt frá undirbúningi og fluguhnýtingum að frágangi eftir síðustu veiðiferð ársins. Fjallað er um kjörsvæði og hegðun silungsins, mismunandi veiðislóðir, græjur og grip, og eftir því sem veiðiárinu vindur fram eru kynntar ólíkar aðferðir og gefin góð ráð til að leysa úr þeim vandkvæðum sem upp kunna að koma.Kristján Friðriksson er veiðimönnum að góðu kunnur fyrir greinaskrif um silungsveiði á vef sínum Flugur og skröksögur,www.fos.is. Persónulegar reynslusögur og athuganir hans munu gagnast reyndum sem óreyndum veiðimönnum og í Vatnaveiði – árið um kring gefst einstakt tækifæri til að öðlast innsýn í heim silungsveiðimanns og náttúruunnanda. Bókina prýðir fjöldi ljósmynda og skýringarmynda sem skerpa á efninu.
Stangveiði Mest lesið Hver er besta haustflugan í laxinn? Veiði Náðu 13 löxum í Brennunni á einum degi Veiði Laugardalsá langt undir meðaltalsveiði Veiði Laxinn hefur gefið sig í Tungufljóti Veiði Allt að 99% afsláttur af veiðileyfum Veiði Hættið að skarka utanvega á veiðislóð! Veiði 120 laxar á land í Norðurá í gær Veiði Góð kvöldveiði í Kleifarvatni Veiði Biðla til afkomenda Flugumanna Veiði Veiði lokið í Eyjafjarðará Veiði