Í síðasta þætti mínum einbeitti ég mér að einföldum og fljótlegum réttum. Ég útbjó meðal annars þessa ómótstæðilegu ostakaka sem ég hvet alla til þess að prófa.
Nutella ostakaka með heslihnetubotni
Botn:
250 g Digestive kexkökur
150 g smjör, við stofuhita
100 g heslihnetur
2 msk Nutella
Aðferð:
Maukið kexkökurnar í matvinnsluvél. Bætið smjörinu, heslihnetum og nutella saman við og maukið. Skiptið kexblöndunni niður í nokkrar skálar eða í eitt stórt form. Setjið inn í kæli á meðan fyllingin er útbúin.
Fylling
500 g rjómaostur, við stofuhita
2 msk flórsykur
1 krukka Nutella
1 tsk vanilludropar
3 dl þeyttur rjómi
Aðferð:
Þeytið saman rjómaost, flórsykur, Nutella og vanilludropa. Þegar blandan er tilbúin bætið þið þeyttum rjóma saman við með sleif. Hellið ostablöndunni í skálarnar og setjið smávegis af rjóma, ristaðar heslihnetur og fersk jarðaber yfir.
Ekki missa af Matargleði Evu öll fimmtudagskvöld kl 19:50 á Stöð 2.