Reha Kurdi og synir hennar tveir Alyan og Galip, sem var fimm ára, flúðu frá bænum Kobane þegar hann var hernuminn af vígamönnum samtakanna Íslamskt ríki. Bærinn var nánast lagður í rúst í bardögum ISIS og Kúrda, sem tóku bæinn úr höndum ISIS.
Þau drukknuðu ásamt minnst níu öðrum þegar bátar þeirra hvolfdu á leiðinni frá Tyrklandi til grísku eyjunnar Kos.
Kanadíski þingmaðurinn Fin Donnelly hefur nú sagt blaðamönnum þar í landi að hann lagði fram beiðni fyrir frænku bræðranna Alyan og Galip, Teema Kurdi, um að fjölskyldan fengi hæli í Kanada. Beiðni hennar var hafnað af starfsmönnum innflytjendastofnunar Kanada.
Teema Kurdi er föðursystir drengjanna, en faðir þeirra Abdullah lifði slysið af. Hún bað þingmanninn um hjálp við að koma ættingjum sínum til Kanada í mars. Beiðni þeirra Teema og Donnelly var hafnað í júní.
„Ég var að reyna að styðja þau og vinir mínir og nágrannar hafa hjálpað mér fjárhagslega, en okkur tókst ekki að koma þeim frá Tyrklandi. Þess vegna fóru þau í bátunum. Ég var að borga leigu fyrir þau í Tyrklandi, en það er komið hræðilega fram við Sýrlendinga þar,“ segir Teema í samtali við Ottawa Citizen.

„Abdullah hafði hringt í hana. Það eina sem hann sagði var: Konan mín og synir eru dáin.“
Teema segir að það eina sem Abdullah vilji gera núna, sé að fara með lík fjölskyldu sinnar aftur til Kobane og grafa þau þar.
Vandamálið var, samkvæmt Guardian, að erfiðlega gengur fyrir fólk að fá opinberlega stöðu flóttafólks hjá Sameinuðu þjóðunum í Tyrklandi. Þá fengu þau ekki brottfararleyfi þaðan.
Hafa vakið mikil viðbrögð
Myndirnar af ferðalokum Alyan Kurdi hafa vakið gífurleg viðbrögð um allan heim og hafa þær verið settar á forsíður dagblaða og tímarita.
Á samfélagsmiðlum hafa umræður sprottið upp um að nauðsynlegt sé að bregðast við vanda þessa fólks og að hjálpa þeim. Einnig hafa myndast umræður gegn birtingu slíkra mynda. Sumir segja að óþarfi sé að birta svo grófar myndir sem þessar en aðrir segja það nauðsynlegt.