Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir Illuga Gunnarsson menntamálaráðherra ekki hafa farið út fyrir eðlileg mörk í heimsókn sinni til Kína. Honum þykir ekki óeðlilegt að fulltrúar Orku Energy hafi verið með í för og segir það sæta furðu að verið sé að grennslast fyrir um fjármál ráðherrans.
Þetta sagði Bjarni í fréttum RÚV í kvöld, aðspurður hvort eðlilegt þyki að þingmaður þiggi vinagreiða frá góðum félaga og fyrirtæki, og tali síðan máli hans í opinberri heimsókn.
„Það myndi ekki hvarfla að mér að það væri sérstök ástæða fyrir því að fyrirtækið fengi að vera með í þessari heimsókn að hann þekkti viðkomandi framkvæmdastjóra. Þvert á móti hafði ekkert slíkt þurft til að koma þegar aðrir ráðherrar voru við sambærilegar aðstæður. Þetta verður ekki mikið augljósara,“ sagði Bjarni í samtali við RÚV.
Sjá einnig: Um þetta snýst mál mál Illuga og Orku Energy
Þá sagðist hann ekki sjá að um hagsmunaárekstra væri að ræða. „Ég sé ekki að það hafi nokkur maður sýnt fram á að Illugi hafi í þessari heimsókn gert nokkuð annað heldur en allir aðrir í sambærilegri stöðu hefðu gert.“
Bjarni sagði stöðu Illuga innan flokksins óbreytta, og að Illugi hafi ekki haft neitt nema óþægindi af þessu máli. „Hvar ætla menn að enda þessa skoðun á fjármálum stjórnmálamanna, sem hafa ekki bara gert hreint fyrir sínum dyrum og birt skattframtalið, heldur er ekki einu sinni sakaður um að brjóta neinar reglur.“
Viðtal RÚV má sjá hér.
Bjarni segir ekkert óeðlilegt við heimsókn Illuga

Tengdar fréttir

Illugi segist ekki hafa neitt meira til að upplýsa
Mennta- og menningarmálaráðherra svarar ekki spurningum Ísland í dag um 1,2 milljóna króna greiðslur til OG Capital árið 2012.

Vill að ráðherra upplýsi um af hverju heimsókn á háhitasvæði í Kína hafi verið hluti af vinnuferð
Bætist við spurningar sem beint er að Illuga Gunnarssyni ráðherra um tengsl við Orku Energy og vinnuferð til Kína.

Hannes Hólmsteinn telur vert að setja gæsalappir um „doktor í heimspeki“
Framganga Henrys Alexanders Henrýssonar heimspekings hefur lagst illa í stuðningsmenn Illuga Gunnarssonar.

Launaseðill Illuga frá Orku Energy birtur
Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra fékk 5,6 milljónir króna í laun frá Orku Energy í febrúar 2012. Tæplega 2.950.000 kr. voru vegna fyrirframgreiddra launa. Um var að ræða uppgjör vegna launa á árinu 2011, að sögn Illuga.

Illugi segir milljónirnar þrjár hafa verið launagreiðslu
Menntamálaráðherra segir fráleitt að hann sé fjárhagslega háður stjórnarformanni Orku Energy.

Mistök að upplýsa ekki allt strax
Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, í ítarlegu viðtali.