1/2 blaðlaukur, smátt skorinn
1 rauð paprika, smátt skorin
6 - 8 sveppir, smátt skornir
1 mexíkóostur
400 ml matreiðslurjómi
fersk steinselja
fersk basilíka
Aðferð:
1. Hitið olíu eða smjör á pönnu, steikið blaðlaukinn þar til hann fer að mýkjast. Bætið paprikunni og sveppum út á pönnuna og steikið.
2. Skerið pepperoní og mexíkóost í litla bita og bætið út á pönnu, hellið matreiðslurjómanum yfir og leyfið ostinum að bráðna við vægan hita.
3. Leyfið þessu að malla á pönnunni í 7 – 10 mínútur. Saxið niður ferska steinselju og stráið yfir réttinn. Hrærið reglulega í réttinum á meðan.
4. Berið fram með brauði eða hellið í eldfast mót og stráið rifnum osti yfir og setjið inn í ofn í smá stund. Mér finnst gott að setja nokkur fersk basilíkulauf yfir réttinn í lokin.
Missið ekki Matargleði Evu öll fimmtudagskvöld á Stöð 2.
Brauðréttur með pepperoni og mexíkóosti

Ljúffengur brauðréttur
Tengdar fréttir

Sjúklega gott súkkulaði fondú
Það þarf ekki að vera flókið að útbúa veitingar fyrir vinahópinn og algjör óþarfi að stressa sig korter fyrir boðið. Hér er skotheld uppskrift að ljúffengu súkkulaði fondú sem slær alltaf í gegn og tekur enga stund að búa til.

Haustleg gúllassúpa
Það er fátt betra en matarmikil og bragðgóð súpa á köldum vetrardögum sem yljar manni að innan. Gott nautakjöt, beikon og grænmeti er uppistaðan í þessari súpu sem þið ættuð að prófa.