Sjá einnig: Um þetta snýst mál Illuga og Orku Energy
Vísir sendi eftirfarandi spurningar til Illuga og Sigríðar Hallgrímsdóttur, aðstoðarmann hans, og þegar nýr aðstoðarmaður var ráðinn, Jóhannes Stefánsson, voru spurningarnar áframsendar á hann:
- Frá hverjum eru greiðslur sem félagið OG Capital fékk árið 2012?
- Árið 2012, samkvæmt ársreikningi, greiddi félagið eiganda félagsins, sem varst þú á þeim tíma, til baka eigendalán. Þá greiddi félagið einnig fyrir kostnað upp á rúmlega 100 þúsund krónur. Eru þetta ekki peningar sem voru tilkomnir vegna verkefna sem þú vannst fyrir Orku Energy?
- Hverjar eru heildargreiðslur sem komið hafa frá Orku Energy til þín og eða félaga þér tengdum, s.s. OG Capital?
Svarið sem Illugi vísaði í er svohljóðandi:
„Ég hef birt og gert grein fyrir öllum upplýsingum er varða tekjur mínar vegna ráðgjafarstarfa fyrir Orku Energy. Eins og skattskýrslur mínar og eiginkonu minnar frá árunum 2012 og 2013 sýna, er einungis um eina launagreiðslu að ræða frá Orku Energy. Þetta eru einu tekjurnar sem ég hef haft frá Orku Energy fyrr og síðar. Hvað OG Capital varðar, þá fékk ég engin laun eða arð frá því félagi, hvorki fyrr né síðar, sem áttu uppruna sinn hjá Orku Energy.“
„Ég hef nú opinberað allt sem hægt er að opinbera um tekjur mínar og reyndar líka Brynhildar konunnar minnar, á þessum árum. Það er ekkert eftir til að opinbera eða svara.“
Eins og áður hefur verið fjallað um kemur fram í ársreikningi OG Capital fyrir árið 2012 að 1,2 milljóna króna greiðsla hafi komið inn í félagið það ár. Ekki voru greidd út laun eða arður, líkt og fram hefur komið í svörum Illuga, en Illugi greiddi sér þó til baka lán til félagsins auk ýmiss kostnaðar.