Hjúkrunarfræðingurinn Ásta Kristín Andrésdóttir var sýknuð af ákæru ríkissaksóknara fyrir manndráp af gáleysi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Var Ásta Kristín sökuð um yfirsjón í starfi sem leiddi til dauða sjúklings á gjörgæsludeild Landspítalans 3. október árið 2012.

Landspítalinn var einnig sýknaður af ákæru ríkissaksóknara og var öllum bótakröfum vísað frá. Ásta Kristín táraðist þegar niðurstaðan var ljós sem og nánasta fólk hennar og samstarfsfólk. Var fjölmenni í héraðsdómi þegar dómurinn var kveðinn upp og fjölmargir sem föðmuðu Ástu.
Sjá einnig: Hjúkrunarfræðingurinn í dómsal: „Ég er búin að vera í helvíti síðustu þrjú ár“
Var henni gefið að sök að hafa láðst að tæma loft úr kraga (belg) barkaraufarrennu þegar hún tók sjúklinginn úr öndunarvél og setti talventil á barkaraufarrennuna.
Sjá einnig: Saksóknari taldi mögulegt að framburður vitna væri ótrúverðugur vegna samhugar
Afleiðingar þess urðu þær að sjúklingurinn gat aðeins andað að sér lofti en ekki frá sér. Varð fall í súrefnismettuninni og blóðþrýstingi sjúklingsins og lést hann skömmu síðar.
Ásta Kristín neitaði sök í málinu.