Ég barðist við tárin á pallinum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 4. desember 2015 06:00 Eygló með hinum verðlaunahöfunum í 100 m baksundi í gær. Vísir/AFP
Eygló Ósk Gústafsdóttir braut blað í íþróttasögu Íslands þegar hún vann til verðlauna á stórmóti í sundi, fyrst íslenskra kvenna, á Evrópumeistaramótinu í 25 m laug sem fer nú fram í Ísrael. Eygló gerði sér lítið fyrir og bætti dagsgamalt Íslandsmet sitt í 100 m baksundi um tæpa sekúndu er hún synti á 57,42 sekúndum í gær. Ungverska sunddrottningin Katinka Hosszu vann gull með miklum yfirburðum en hún synti á 55,42 sekúndum. Önnur varð svo Alijca Tchorz frá Póllandi á 57,17 sekúndum.Sjá einnig: Eygló Ósk vann brons á Evrópumótinu „Ég var ekkert að hugsa um tímann. Fyrir mótið ætlaði ég mér að fara undir 58 sekúndur en það eina sem ég hugsaði um fyrir sundið var einfaldlega að gera mitt besta,“ sagði Eygló við Fréttablaðið í gær en hún var þá nýkomin af verðlaunapallinum. Gleðin var eðlilega mikil og heyrðist hreinlega á Eygló að hún var skælbrosandi allt viðtalið.Man ekki eftir sundinu „Ég man í raun ekki neitt eftir sundinu sjálfu. Einbeitingin var greinilega það mikil að það er eiginlega skýjað í minningunni,“ segir Eygló sem fylltist stolti við að sjá íslenska fánann fara á loft í verðlaunaafhendingunni. „Ég var að berjast gegn öllum líkamanum svo ég færi ekki að gráta. Ég get í raun ekki lýst þessu, enda framar öllum mínum væntingum. Ég er í skýjunum.“Sjá einnig: Besti árangur íslenskrar sundkonu Sterkasta grein Eyglóar er 200 m baksund og keppir hún í þeirri grein strax í dag. „Mitt aðalmarkmið fyrir mótið var að vera á meðal fimm efstu í 200 metrunum. Ég var í raun ekkert að hugsa um hundrað bakið, enda ekki mín aðalgrein.“ Eygló var lengi að átta sig á því að hún hafi unnið til verðlauna og þurfti að horfa á tímatöfluna í drykklanga stund áður en hún áttaði sig almennilega á því að bronsið var í höfn. En þar sem keppni í 200 m baksundi er á dagskrá strax í dag gat Eygló ekki leyft sér að njóta stundarinnar lengi. „Ég þarf að drífa mig út í laug til að synda mig niður og svo fer ég í slökun og fæ nudd,“ segir Eygló en ólíkt greininni í gær verða engin undanúrslit í 200 m baksundi – aðeins undanrásir en þaðan fara átta bestu beint í úrslitin.Æfingarnar borguðu sig Jacky Pellerin, landsliðsþjálfari í sundi, hrósaði Eygló mjög eftir afrek gærdagsins. „Hún var loksins að framkvæma allt það sem við höfum rætt á æfingum. Hún var virkilega einbeitt og er loksins að átta sig á því að hún getur þetta svo vel,“ segir Pellerin sem segir að æfingar síðustu vikna hafi skilað sér. „Við höfum verið að greina æfingar hennar, til dæmis með myndbandsupptökum. Eygló hefur síðustu tvær vikurnar unnið virkilega vel í sínum málum og þetta er afraksturinn.“ Ragnheiður Runólfsdóttir, sem var kjörin íþróttamaður ársins 1991, var fremsta sundkona landsins um árabil og náði sjöunda sæti í 200 m bringusundi á EM í Aþenu það árið. Það var besti árangur íslenskrar konu á stórmóti þar til í sumar, er bæði Eygló og Hrafnhildur Lúthersdóttir kepptu til úrslita á HM í 50 m laug fyrst íslenskra kvenna.
Sund Mest lesið Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Enski boltinn Sturluð staðreynd um afrek Eyglóar Sport Úlfarnir unnu United aftur Enski boltinn Segir Akureyri á hjara veraldar og varð hugfanginn í Sjallanum Sport Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Enski boltinn Kallaði sig hálfvita eftir áreksturinn Formúla 1 ÍA og Vestri mætast inni Íslenski boltinn Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Enski boltinn Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Enski boltinn Grýtti spjaldtölvu í jörðina þegar víti var ekki dæmt Fótbolti Fleiri fréttir Bologna gerði sér lítið fyrir og lagði topplið Inter Einar Þorsteinn hafði betur gegn Guðmundi Braga Piastri sigraði í Jeddah og leiðir keppni ökumanna Valverde bjargaði vondri viku Evrópumeistararnir fóru hamförum Daníel Leó með mikilvægt sigurmark á meðan Kolbeinn skoraði í tapi „Vinnur ekki leiki ef þú skorar ekki“ ÍA og Vestri mætast inni Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Hákon nær Meistaradeildinni en Mikael áfram í fallsæti Úlfarnir unnu United aftur Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Grýtti spjaldtölvu í jörðina þegar víti var ekki dæmt María lagði upp og fyrsta stigið komið í hús Losað um hlekki Jóns Dags sem lagði upp eftir tuttugu sekúndur Stefán Gísli fékk fimm ára samning hjá Val Sturluð staðreynd um afrek Eyglóar Segir Akureyri á hjara veraldar og varð hugfanginn í Sjallanum „Langaði að bæta nálgun mína á körfubolta“ Kallaði sig hálfvita eftir áreksturinn Doncic og James byrjuðu á tapi á heimavelli Ancelotti segir engin illindi milli sín og forsetans Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Dagskráin í dag: Formúla 1 og NBA á Páskasunnudegi Bestu Mörkin: „Kannski ekki fallegasta markið“ Meiddur Ramsey stýrir Cardiff út tímabilið Guardiola segir Meistaradeildarsæti vera nóg Hamar í góðum málum og Breiðablik jafnaði metin „Flæðið í sóknarleiknum var frábært“ Sjá meira