Sjöunda Stjörnustríðsmyndin, The Force Awakens, er á hvínandi siglingu um þessar mundir og sló tvö met á Íslandi í liðinni viku.
Myndin sló dagsmetið á Íslandi síðastliðinn fimmtudag þegar 10.300 sáu hana hér á landi. Frá fimmtudegi til sunnudags sáu 27.500 manns myndina hér á landi og hefur engin mynd dregið svo marga áhorfendur á fjórum dögum. Mikið tilstand var í kringum frumsýningu þessarar myndar. Tíu þúsund manns keyptu miða í forsölu og þá ákváðu Sambíóin að sýna hana allan sólarhringinn í Álfabakka og á Akureyri.
Sú mynd sem átti dagsmetið og fjögurra daga metið áður var þriðja myndin í þríleiknum um Hobbitann, The Battle of the Five Armies, sem kom út í desember í fyrra.
Björn Ásberg Árnason, framkvæmdastjóri Sambíóanna, segir ómögulegt að segja til um hver heildaraðsóknin verði þegar upp er staðið en á allt eins von á því að The Force Awakens muni komast í flokk með Titanic og Avatar yfir aðsóknamestu myndirnar á Íslandi, en rúmlega hundrað þúsund áhorfendur sáu hvora mynd hér á landi.
James Cameron leikstýrði báðum myndum, Titanic kom út árið 1997 en Avatar árið 2009.
Rúmlega 27 þúsund sáu The Force Awakens á Íslandi í síðustu viku

Tengdar fréttir

Star Wars-frumsýningin: „Ég varla trúi því að þetta sé að gerast“
Einn laumaðist inn í Egilshöll um miðjan dag til að vera fremstur og annar ætlar að sjá sjöundu Stjörnustríðsmyndina sjö sinnum.

Áhorfendur á Star Wars-sýningu trylltust þegar sýningarvélin bilaði
Til að bæta gráu ofan á svart var hlaupið yfir stóran hluta myndarinnar þegar truflanir gerðu vart við sig aftur.

Star Wars á stærstu opnunarhelgi sögunnar í Bandaríkjunum
Kvikmyndin Star Wars: The Force Awakens hefur halað inn 517 milljónum Bandaríkjadollara á heimsvísu frá því að myndin fór í sýningu. Það eru tæplega 68 milljarðar íslenskra króna.

Uppnám á Star Wars-sýningu í Egilshöll: „Ótrúlegt að þetta þurfi að gerast á stærstu stundinni í okkar löngu sögu“
Undir lok miðnætursýningarinnar á Star Wars í Egilshöll í nótt fraus myndin ítrekað – hátt í tíu sinnum og í fjölmargar sekúndur í hvert skipti.

Staðfest að Daniel Craig leikur stormsveitarmann í The Force Awakens
Hafði staðfastlega neitað frásögnum þess efnis og sagt þær vera algjört kjaftæði.

Star Wars hittir aftur í mark
Star Wars: The Force Awakens fangar jafnt gamla aðdáendur sem nýja. Enginn "spoiler“.