Fréttablaðið náði af honum tali þegar ljóst var að hann væri meðal tilnefndra til Óskarsverðlaunanna. Aðspurður hvort hann hafi einhvern tíma órað fyrir því að hann ætti eftir að fá þessar viðurkenningar neitar hann því.
„Nei, ég hef svo sem ekki hugsað mikið um þetta eða pælt í þessu ferli öllu saman. Ég átti í rauninni alls ekki von á þessu og kemur allt mjög á óvart. Þetta eru alveg ótrúlegar fréttir,“ segir Jóhann hógvær.

Hann segir tilfinninguna að heyra nafnið sitt og fara upp á svið hafa verið óraunverulega. „Þetta kom mér rosalega á óvart og var mjög óraunveruleg tilfinning. Það var hálfgerð skelfing að þurfa að labba þarna upp og halda ræðu fyrir fullum sal af kvikmyndastjörnum,“ segir hann.
Ræðuna hafði hann ekki skipulagt en reiknar með að setja eitthvað niður fyrir Óskarsverðlaunin. En hvar skyldi Jóhann ætla að geyma gyllta hnöttinn? „Ja, ég er nú ekki búinn að finna stað enn þá, ég verð að sjá hvar þetta passar í stofuna, nú eða stúdíóið.“
Fram undan, fyrir utan Óskarsverðlaunin hinn 22. febrúar, eru bresku BAFTA-verðlaunin 8. febrúar en þar er Jóhann einnig tilnefndur. Þessa dagana vinnur hann að tónlist fyrir kvikmyndina Sicario eftir Denis Villenevue, en þeir unnu einnig saman að myndinni Prisoners. „Ég er á kafi að klára þá tónlist og reikna með að við förum í upptökur í byrjun næsta mánaðar.“