Styður við bakið á Cumberbatch 29. janúar 2015 11:00 Benedict Cumberbatch. Leikarinn hefur beðist innilega afsökunar á því að hafa notað orðið "litaður“. Vísir/Getty
David Oyelowo hefur komið kollega sínum og landa, Bretanum Benedict Cumberbatch, til varnar fyrir að hafa notað orðið „litaður“ í viðtali. Cumberbatch baðst afsökunar og sagðist vera „eyðilagður yfir því að hafa móðgað fólk“ með því að nota orðið í bandarískum spjallþætti til að lýsa þeldökkum leikurum. Orðalag hans var gagnrýnt víða á netinu eftir viðtalið, auk þess sem góðgerðarsamtökin Show Racism the Red Card sögðu orðið „litaður“ vera úrelt. „Mér finnst þetta fáránlegt,“ sagði Oyelowo við Newsbeat á BBC. „Þegar þú hlustar á hvað hann var í raun og veru að segja er ljóst að hann er mikill stuðningsmaður þeldökkra listamanna.“ Oyelowo lét hafa þetta eftir sér á frumsýningu kvikmyndarinnar Selma í Bretlandi, þar sem hann fer með hlutverk mannréttindaleiðtogans Martins Luthers King. Cumberbatch minntist á Oyelowo og Chiwetel Ejiofor í viðtali við spjallþáttarstjórnandann Tavis Smiley um fjölbreytileika á meðal leikara í kvikmyndaiðnaðinum. „Að ráðast á hann fyrir orð, í staðinn fyrir að pæla í um hvað hann var í raun að segja, er mjög óheiðarlegt og gefur vísbendingu um tímana sem við lifum á þar sem fólk leitar að hljóðbútum í stað innihaldsins.“ Cumberbatch, sem sló í gegn í sjónvarpsþáttunum um Sherlock Holmes, er tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir hlutverk sitt í The Imitation Game. Spurður hvort fjaðrafokið vegna ummæla hans muni hafa áhrif á feril hans, þvertók Oyleowo fyrir það. „Ég held að þetta sé bara hluti af kjánalegum fréttahring sem umlykur okkur öll og þetta hverfur fljótt af sjónarsviðinu,“ sagði hann. „Hann er frábær leikari og er magnaður í Imitation Game. Þetta beinir bara athyglinni frá því sem við ættum að vera að tala um, stórkostlega frammistöðu hans.Minni líkur á Óskarsverðlaunum Fréttamaður Newsbeat á BBC telur að fjaðrafokið í kringum Cumberbatch gæti dregið úr möguleikum hans á að hreppa Óskarinn en kosningin er í gangi um þessar mundir. „Það er líklegast að hinir sem eru tilnefndir, Eddie Redmayne, Michael Keaton, Bradley Cooper og Steve Carell, hafi óbeint fengið aukið fylgi í kosningunum,“ sagði hann en bætti við að ferill Cumberbatch mundi ekki bíða hnekki.
Bíó og sjónvarp Óskarinn Mest lesið „Þetta er allt partur af plani hjá guði“ Tónlist Fjármagnaði uppsetningu í Iðnó en hrökk úr lið á frumsýningu Lífið Sunneva og Benedikt trúlofuð Lífið Fréttatía vikunnar: Íþróttir, afsökunarbeiðni og bækur Lífið Kraftaverkasaga: „Mun ég aldrei sjá þau aftur?“ Áskorun Breytti nafninu sínu svo það yrði ekki brotist inn Lífið Gengur yfir Sprengisand með hundrað kíló í eftirdragi Lífið „Eina sem maður getur gert er að reyna vera betri maður í dag en þá“ Lífið „Ég vildi fela mig fyrir heiminum“ Lífið Hafði mikla þörf fyrir að láta aðra sjá að hún væri spes týpa Lífið Fleiri fréttir Viðræður hafnar um framhald á Adolescence Rísandi stórstjarna og alvöru hjartaknúsari Bestu myndir Vals Kilmer og verstu floppin Þeir munu túlka Bítlana í myndum Sam Mendes Stjörnum prýdd stikla Black Mirror Nolan sagður stefna á tökur á Íslandi Ljósbrot besta myndin en Snerting með flest verðlaun Happy Gilmore snýr aftur Harpa kvótadrottning aftur á skjáinn Ólafur Darri og félagar framleiða sína fyrstu teiknimynd Anora sigurvegari á Óskarnum Óskarsverðlaunasérfræðingur spáir í Hollywood-spilin: Spennandi óskar í vændum og ekkert meitlað í stein Sjá meira
Óskarsverðlaunasérfræðingur spáir í Hollywood-spilin: Spennandi óskar í vændum og ekkert meitlað í stein