Ferðamenn í kröppum dansi í Reynisfjöru: „Fólk hlustar ekki“
Kristján Guðmundsson sem starfar við ferðaþjónustu tók meðfylgjandi myndir með aðdráttarlinsu í töluverðri fjarlægð frá atvikinu en sjá má þegar leiðsögumaður kemur konunni til bjargar.
Fjöldi frétta hafa verið skrifaðar um ferðamenn sem koma sér í hættulegar aðstæður í Reynisfjöru og hafa nokkrir þeirra látið lífið. Bandarísk kona á áttræðisaldri beið bana þegar brimalda hrifsaði hana út á dýpið árið 2007. Ári síðar voru þýsk hjón hætt komin á sömu slóðum þegar alda tóku þau með sér. Sama ár reyndi hópur ferðamanna að koma hval til bjargar sem rekið hafði á land.
Kristján birti myndirnar inni á hópnum Bakland ferðaþjónustunnar á Facebook en þar segir hann að nokkrum andartökum eftir að þessar myndir voru teknar fóru tveir ferðamenn til viðbótar í brimið.
„Það var mikið brim þennan dag en fólk hlustar ekki. Fólk er að reyna sitt besta, bílstjórar, leiðsögumenn og aðrir en fólk bara hlustar ekki. Þegar það er svona mikið brim þá er þetta bara mjög erfitt,“ segir Kristján.
Tengdar fréttir
„Hann var rosalega glaður að halda lífi“
Mennirnir sem björguðu erlenda ferðamanninum í Reynisfjöru þeyttust inn í Hálsnefshelli með briminu og leið þeim eins og þeir væru inni í þvottavél.
Kona lét lífið þegar brimskafl tók hana
Bandarísk kona lést í fjörunni við Vík í Mýrdal eftir að alda skall á henni og hreif frá landi. Mildi þykir að dóttir konunnar hafi sloppið. Formaður björgunarsveitarinnar í Vík segir að unnið hafi verið að því að koma upp aðvörunarskilti.
Ferðamaður féll í sjóinn við Reynisfjöru
Erlendur ferðamaður féll í sjóinn við Reynisfjöru í Vík í Mýrdal.
Fífldjarfur ferðamaður í Reynisfjöru: „Tímaspursmál hvenær verður stórslys þarna“
Dæmi eru um banaslys í Reynisfjöru undanfarin ár en svo virðist sem ferðamenn geri sér engan veginn grein fyrir hættunni af briminu.
Öldur hrifsuðu ferðamenn út í sjó: „Þau voru náttúrulega í sjokki“
Ferðamenn voru í bráðri hættu á Djúpalónssandi á Snæfellsnesi í dag vegna mikils öldugangs.
„Ekki eins og fólk sé ekki varað við hættunum“
Upplýsingafulltrúi Landsbjargar og forstöðumaður skrifstofu Ferðamálastofu á Akureyri segja að gera þurfi betur í því að auka öryggi ferðamanna hér á landi.
Eftirlitslaus börn hlaupandi á ísnum við Jökulsárlón
"Þetta er algjörlega galið. Fólk virðist ekki sjá hættuna í þessu og er hlæjandi á ísnum,“ segir leiðsögumaðurinn Owen Hunt sem var með hóp fólks við Jökulsárlón í gær.
Ferðamenn hætt komnir við Reynisfjöru þegar þeir reyndu að bjarga hval
Erlendir ferðamenn voru hætt komnir þegar þeir reyndu að koma hval til bjargar sem hafði rekið á land við Reynisfjöru við Vík rétt fyrir hádegið í dag. Ólafur Björnsson, bóndi á Reyni, segir að sér hafi ekkert litist á blikuna þegar hann hafi séð að fólkið hafi verið búið að vaða í fjöruna allt upp að mitti.
Íslenskur leiðsögumaður: „Sumir hlusta bara ekki“
Svo virðist sem erlendir ljósmyndarar hunsi aðvaranir reyndra íslenskra leiðsögumanna hér á landi í leit að hinni fullkomnu ljósmynd.