Karlmaður um fertugt er í gæsluvarðhaldi til 18. mars næstkomandi grunaður um að hafa haldið tveimur konum í vinnuþrælkun á heimili hans í Vík. Maðurinn átti og stýrði fyrirtækinu Vonta International sem var undirverktaki útivistavörufyrirtækisins Icewear.
Fyrirtækið Drífa er síðan eigandi Icewear en Drífa keypti Víkurprjón í Vík í Mýrdal árið 2012. Vík Prjónsdóttir var stofnuð árið 2005 sem upphaflega samstarfsverkefni nokkurra hönnuða og Víkurprjóns og er Guðfinna Mjöll einn þeirra hönnuða.
Margir gætu því hafa tengt Vík Prjónsdóttur við þetta mál en Guðfinna segir fyrirtækið hafa verið klofið frá Víkurprjón fyrir söluna á fyrirtækinu til Icewear árið 2012 og segist hún vera afar þakklát fyrir það í dag.

Eigendur Icewear hafa varist frétta af málinu en Ágúst Þór Eiríksson, framkvæmdastjóri Icewear, sagði í samtali við fréttastofu í gær að málið tengdist fyrirtæki hans ekki beint og að hvorki hann né annað starfsfólk hefði vitað af tilvist kvennanna.
Fyrir áramót kom upp annað mál tengt manninum þar sem talið var að hann væri með starfsfólk í vinnu sem ekki til þess réttindi. Þeim starfsmönnum var vísað úr landi en fyrirtækið hélt áfram að starfa fyrir Icewear allt þar til á fimmtudag.
Drífa Snædal, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins, sagði við fréttastofu 365 á laugardag að stærri fyrirtæki verði að sýna ábyrgð, það er að þau geti ekki fríað sig ábyrgð á brotum undirverktaka.
„Varðandi Icewear sérstaklega, og fyrirtæki sem eru með undirverktaka, þá þarf náttúrlega að koma upp keðjuábyrgð,“ sagði Drífa. Guðfinna Mjöll tekur undir þessi orð.
„Það getur verið fullt af frábærum framleiðslufyrirtækjum um allan heim en líka önnur sem níðast á fólki, en þú sem framleiðandi verður að bera ábyrgð á því hvar þú ætlar að láta framleiða fyrir þig. Það er það sem er svo stór ábyrgð. Það kemur oft upp að það er lofað öllu fögru en svo er eitthvað misjafnt í gangi. Mér finnst svo flott að Starfsgreinasambandið var að benda á þessa keðjuábyrgð að sá sem kaupir af öðru fyrirtæki verður líka að bera ábyrgð á að það sé allt í lagi,“ segir Guðfinna Mjöll.
Ábyrgð neytenda töluverð
Hún segir það vera sláandi ef rétt reynist að svona brot séu orðin að veruleika hér á landi. „Svo þarf að skoða hvort þetta leynist víðar hér á landi.“Þá segir Guðfinna ábyrgð neytenda vera töluverða í svona málum.
„Flestir segjast vera hlynntir mannréttindum en samt vilja þeir geta keypt hluti á verði sem gengur ekki upp í flestum tilvikum. Þetta er í allri framleiðslu. Byltingin verður að eiga sér stað hjá neytendum, þeir verða að segja stopp.“