Aníta fimmta á HM innanhúss Tómas Þór Þórðarson skrifar 20. mars 2016 20:30 Aníta Hinriksdóttir stóð sig frábærlega í kvöld. vísir/getty
Aníta Hinriksdóttir, hlaupadrottningin úr ÍR, varð í fimmta sæti á HM innanhúss sem fram fer í Portland í Bandaríkjum en úrslitahlaupið fór fram í kvöld. Aníta var öftust fyrri hluta hlaupsins en tók svo flottan sprett og komst í fjórða sætið. Hún missti það svo á lokahringnum en kom í mark á 2:02,58 mínútum og hafnaði sem fyrr segir í fimmta sæti.Sjá einnig:Þjálfari Anítu: Ég er sáttur en Aníta vildi meira Hún komst í úrslitin með því að hlaupa á 2:01,96 í gær en náði því miður ekki að bæta sig. Francine Niyonsaba frá Búrúndi varð heimsmeistari en hún kom í mark á 2:00,01 mínútum sem er besti tími ársins. Þetta er annað stórmót fullorðinna innanhúss í röð þar sem hin tvítuga Aníta Hinriksdóttir nær fimmta sæti. Hún varð einnig fimmta á EM innanhúss í fyrra og náði 20. sæti á HM í Peking á síðasta ári. Aníta hefur nú á sínum ferli unnið gull í 800 metra hlaupi á Smáþjóðaleikunum (2013), orðið heimsmeistari æskunnar (2013) og Evrópumeistari unglina (2013). Þá vann hún silfur á Smáþjóðaleikunum í fyrra í 800 metra hlaupi en fagnaði sigri í 1.500 metra hlaupi. Einnig vann Aníta gull á norðurlandamótinu innanhúss í Vaxjö í Svíþjóð fyrr á þessu ári.
Frjálsar íþróttir Tengdar fréttir Þjálfari Anítu: Ég er sáttur en Aníta vildi meira Gunnar Páll Jóakimsson er stoltur af sinni stelpu sem náði fimmta sæti á HM innanhúss í kvöld. 20. mars 2016 20:57 Mest lesið Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Enski boltinn Sturluð staðreynd um afrek Eyglóar Sport Úlfarnir unnu United aftur Enski boltinn Segir Akureyri á hjara veraldar og varð hugfanginn í Sjallanum Sport Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Enski boltinn Kallaði sig hálfvita eftir áreksturinn Formúla 1 ÍA og Vestri mætast inni Íslenski boltinn Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Enski boltinn Piastri sigraði í Jeddah og leiðir keppni ökumanna Formúla 1 Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Enski boltinn Fleiri fréttir Ástbjörn missir af næstu leikjum KR Slot sáttur fyrir hönd Trent Alexander-Arnold Bologna gerði sér lítið fyrir og lagði topplið Inter Einar Þorsteinn hafði betur gegn Guðmundi Braga Piastri sigraði í Jeddah og leiðir keppni ökumanna Valverde bjargaði vondri viku Evrópumeistararnir fóru hamförum Daníel Leó með mikilvægt sigurmark á meðan Kolbeinn skoraði í tapi „Vinnur ekki leiki ef þú skorar ekki“ ÍA og Vestri mætast inni Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Hákon nær Meistaradeildinni en Mikael áfram í fallsæti Úlfarnir unnu United aftur Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Grýtti spjaldtölvu í jörðina þegar víti var ekki dæmt María lagði upp og fyrsta stigið komið í hús Losað um hlekki Jóns Dags sem lagði upp eftir tuttugu sekúndur Stefán Gísli fékk fimm ára samning hjá Val Sturluð staðreynd um afrek Eyglóar Segir Akureyri á hjara veraldar og varð hugfanginn í Sjallanum „Langaði að bæta nálgun mína á körfubolta“ Kallaði sig hálfvita eftir áreksturinn Doncic og James byrjuðu á tapi á heimavelli Ancelotti segir engin illindi milli sín og forsetans Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Dagskráin í dag: Formúla 1 og NBA á Páskasunnudegi Bestu Mörkin: „Kannski ekki fallegasta markið“ Meiddur Ramsey stýrir Cardiff út tímabilið Guardiola segir Meistaradeildarsæti vera nóg Sjá meira
Þjálfari Anítu: Ég er sáttur en Aníta vildi meira Gunnar Páll Jóakimsson er stoltur af sinni stelpu sem náði fimmta sæti á HM innanhúss í kvöld. 20. mars 2016 20:57