Við höfum alltaf hannað og smíðað inn á heimilið okkar frá því við kynntumst og fórum að búa. Það kom að því að okkur langaði að vita hvort einhver annar en við sjálf hefði áhuga á því sem við vorum að smíða og einhver pinnaði mynd á Pinterest. Þá rauk þetta af stað og pantanir hrúguðust inn,“ útskýrir Ágústa Magnúsdóttir en hún Gústav Jóhannsson hanna og smíða húsgögn undir heitinu Agustav.
Varan sem pinnuð var á Pinterest og ýtti snjóboltanum af stað voru bókasnagar úr við. Ágústa og Gústav voru þá búsett í Danmörku en sýndu snagana á HönnunarMars 2012. Þau fluttu síðan til Ítalíu með fjölskylduna og byggðu fyrirtækið enn frekar upp áður en þau fluttu hingað heim fyrir tveimur árum. Nú fjórum árum eftir að bókasnagarnir slógu í gegn hanna þau og framleiða borð, kolla, stóla, sófa og ruggustóla svo eitthvað sé nefnt.

Húsgögn Agustav eru smíðuð úr gegnheilum við og fyrir hverja selda vöru planta þau nýju tré. Gústav er húsgagnasmiður og sér um alla smíðina á verkstæði þeirra hjóna í Súðavogi.
„Ég þvælist bara fyrir,“ segir Ágústa hlæjandi. „Við erum að klára pöntun fyrir Slippbarinn og þar áður smíðuðum við barstóla og snaga fyrir Marina hótel. Við sérsmíðum einnig eftir óskum fólks.“
Heimili þeirra hjóna undirlagt þeirra eigin hönnun og smíði og segir Ágústa gæðin í handverkinu þeirra hjartans mál.
„Við viljum skapa vörur sem endast, þetta eru húsgögn sem barnabörnin munu rífast um,“ segir hún sposk.
Nánar má forvitnast um hönnun Ágústu og Gústavs á www.Agustav.is