Mercedes Benz áformar 9 nýja rafmagnsbíla Finnur Thorlacius skrifar 5. september 2016 09:55 Er rafmögnuð framtíð hjá Mercedes Benz?
Svo virðist sem Mercedes Benz hyggist ætla að keppa við Tesla af meiri krafti en áður var talið við smíði rafmagnsbíla. Eftir heimildum frá Reuters vinnur Mercedes Benz nú að smíði að minnsta kosti 6 nýrra rafmagnsbíla, en gæti kynnt allt að 9 slíka bíla á næstu árum. Yrðu þeir bílar í flokki fólksbíla, jeppa og jepplinga af ýmsum stærðum. Þessir umræddu bílar yrðu bæði í formi hreinræktaðra rafmagnsbíla og Plug-In-Hybrid bíla. Þá er í skoðun hjá Mercedes Benz að smíða bíl með bæði rafmagns- og vetnisdrifrás þar sem vetnisbrunavél tæki við þegar ramagn þrýtur á rafhlöðum bílsins. Þessir áformuðu bílar munu sjá dagsljósið á árunum 2081 til 2024. Það er ekki bara Mercedes Benz sem munu keppa hatrammlega við bandaríska rafbílaframleiðandann Tesla, en Audi hefur einnig uppi mikil áform um smíði rafmagnsbíla á næstu árum, sem og Porsche. Margir kínverskir bílaframleiðendur hafa einnig kynnt metnaðarfull áform sín um smíði rafmagnsbíla og ætla sér stóra hluti með ódýrari bíla en Tesla býður nú.
Mest lesið Segir 60 mínútur hafa misst sjálfstæðið og hættir Erlent Sagður bjóða frið fyrir formlega eign á Krímskaga Erlent Beint flug milli Akureyrar og útlanda aldrei verið meira Innlent Óþarfi að nota kauðslega þýdda málshætti í páskaeggin Innlent Valdatafl í Vatíkaninu: Hver verður næsti páfi? Erlent Segir líklega langt í næsta gos við Sundhnúka Innlent Oscar þori varla út úr húsi af ótta við að vera sendur úr landi Innlent „Ég er mannleg“ Innlent Banað af hákörlum þar sem fólk hefur lengi synt með þeim Erlent Barn á óskoðuðum bíl á 151 kílómetra hraða Innlent