Listi Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi fyrir komandi þingkosningar var samþykktur á fundi kjördæmaráðs í Reykjanesbæ í kvöld.
Oddný G. Harðardóttir, formaður Samfylkingarinnar, mun leiða listann en Ólafur Þór Ólafsson, stjórnsýslufræðingur og forseti bæjarstjórnar Sandgerðisbæjar, skipar annað sæti listans.
Sjá má listann í heild sinni að neðan.
1. Oddný G. Harðardóttir alþingismaður, Garði
2. Ólafur Þór Ólafsson, stjórnsýslufræðingur og forseti bæjarstjórnar, Sandgerði
3. Arna Ír Gunnarsdóttir félagsráðgjafi og bæjarfulltrúi, Selfossi
4. Magnús Sigurjón Guðmundsson aðgerðastjóri, Selfossi
5. Guðný Birna Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur og bæjarfulltrúi, Reykjanesbæ
6. Miralem Haseta húsvörður, Höfn í Hornafirði
7. Arna Huld Sigurðardóttir hjúkrunarfræðingur, Vestmannaeyjum
8. Guðmundur Oddgeirsson framkvæmdastjóri og bæjarfulltrúi, Þorlákshöfn
9. Borghildur Kristinsdóttir bóndi, Landsveit
10. Marta Sigurðardóttir viðskiptastjóri og bæjarfulltrúi, Grindavík
11. Andri Þór Ólafsson vaktstjóri, Sandgerði
12. Kristbjörg Erla Hreinsdóttir öryrki, Hveragerði
13. Guðbjörg Anna Bergsdóttir lögfræðingur og bóndi, Höfn í Hornafirði
14. Magnús Kjartansson hljómlistarmaður, Grímsnesi
15. Guðbjörg Rut Þórisdóttir deildarstjóri, Reykjanesbæ
16. Ingimundur Bergmann formaður Félags kjúklingabænda, Flóahreppi
17. Kristján Gunnarsson formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágr., Reykjanesbæ
18. Kristín Á. Guðmundsdóttir formaður Sjúkraliðafélag Íslands, Árborg
19. Karl Steinar Guðnason fyrrverandi alþingismaður, Reykjanesbæ
20. Margrét Frímannsdóttir fyrrverandi alþingismaður, Kópavogi
Listi Samfylkingar í Suðurkjördæmi samþykktur
Atli Ísleifsson skrifar
