Matur

Blessuð kindin í nýjum búningi

,,Segja má að hugmyndin hafi kviknað út frá því að okkur fannst lambakjöt eiga undir högg að sækja, sérstaklega hjá yngra fólki,“ segir Ólafur Ágústsson matreiðslumaður sem er í forsvari fyrir viðburðinn Sláturtíð á KEX í dag.
MYND/STEFÁN
,,Segja má að hugmyndin hafi kviknað út frá því að okkur fannst lambakjöt eiga undir högg að sækja, sérstaklega hjá yngra fólki,“ segir Ólafur Ágústsson matreiðslumaður sem er í forsvari fyrir viðburðinn Sláturtíð á KEX í dag. MYND/STEFÁN
Sláturtíðinni verður fagnað með glæsibrag á götumatarhátíð á KEX hosteli í dag í samstarfi við íslenska sauðfjárbændur. Gestum verður boðið upp á fjölbreytta rétti úr lambakjöti og innmat sem sumir verða kunnuglegir á meðan aðrir verða framandi fyrir marga.

Ólafur Ágústsson matreiðslumaður er í forsvari fyrir hátíðinni sem er í raun samvinnuverkefni DILL Restaurant, Sæmundar í sparifötunum á KEX hosteli og pitsustaðarins á Hverfisgötu 12. „Segja má að hugmyndin hafi kviknað út frá því að okkur fannst lambakjöt eiga undir högg að sækja, sérstaklega hjá yngra fólki. Við vildum gera eitthvað til þess að sýna fram á að lambakjöt og afleiddar afurðir eigi fullt erindi á matardiska yngra og eldra fólks. Götumatur virðist vera eitthvað sem margir tengja við í dag, sérstaklega yngra fólk, og sá hópur sem sækir KEX hostel dagsdaglega er auðvitað með puttann á púlsinum.“

Gómsætar grillaðar lambakótelettur með nýju og spennandi sniði. MYND/STEFÁNvísir/stefán
Fjölbreyttir réttir

Réttirnir verða bornir fram án endurgjalds vítt og breitt um KEX hostel. „Við bjóðum upp á þekkta rétti úr heimi götumatar, svo sem takkó, pylsu, smurbrauð og fleira. Allt eru þetta þekktir réttir en búið er að nálgast hráefnið og eldunina á örlítið annan hátt en vant er.“

Gestir fá m.a. að bragða á steiktri rúllupylsu á súrdeigsbrauði, nýru og hjörtu í enskri „Cornish pasty“ böku, frelsisborgara KEX með lambakjöti og slátur í pylsubrauði með rófu. „Einnig munum við bjóða upp á okkar eigin útgáfu af „Rocky Moun­tain oysters“ sem eru snöggsteikt hrúts­eistu með chili-mæjói. Auk réttanna verða drykkir til sölu á staðnum.“

„Við bjóðum upp á þekkta rétti úr heimi götumatar, svo sem takkó, pylsu, smurbrauð og fleira. Allt eru þetta þekktir réttir en búið er að nálgast hráefnið og eldunina á örlítið annan hátt en vant er,“ segir Ólafur. MYND/STEFÁN
Hugmyndaflugið virkjað

Þótt boðið sé upp á fjölbreytta rétti og jafnvel framandi segir Ólafur matreiðsluna fyrst og fremst snúast um að nota hugmyndaflugið og búa til vörur sem fólk vill borða og sækist í. „Lambapylsur þurfa t.d. ekki að vera brimsaltar og reyktar til þess að hægt sé að borða þær. Þetta snýst um hugarfarsbreytingu í framleiðslu, markaðssetningu og neyslu. Við þurfum að vera miklu stoltari af kindinni, gera meira fyrir vöruna og hvetja til nýsköpunar.“

Þrátt fyrir allar nýjungar á þó gamla góða tuggan alltaf við að sögn Ólafs, að íslenskt lambakjöt þurfi ekki að krydda þar sem það kemur kryddað úr haga. „Hins vegar er ekkert að því að prófa sig áfram með framandi samsetningar, til að mynda er sterkkryddaður lambaframpartur í takkó með kóríander og avókadó alveg magnaður matur.“

Sláturtíð á KEX stendur yfir milli kl. 13 og 17 í dag. Nánari upplýsingar má finna á Facebook-síðu KEX hostels.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.