Arnór Gunnar Gunnarsson sagnfræðinemi og Ólafur Kjaran Árnason hagfræðinemi hittu Jimmy Carter, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, á dögunum. Þeir Arnór og Ólafur hafa verið á ferðalagi um Bandaríkin að undanförnu til þess að kynna sér baráttuna í forsetakosningum Bandaríkjanna.
Það var í Maranatha-baptistakirkjunni í Plains í Georgíuríki sem Arnór og Ólafur hittu hinn aldna fyrrverandi forseta. Carter hefur annast sunnudagaskóla í kirkjunni um langt skeið. „Við fórum sem sagt í sunnudagaskólann og það var gríðarleg öryggisgæsla í og við kirkjuna, leyniþjónustumenn á hverju strái. Carter ræddi kosningabaráttuna og sagðist telja að bandaríska þjóðin hafi ekki verið jafn klofin síðan í borgarastríðinu,“ sagði Arnór í samtali við Fréttablaðið. Hann segir þeim hafa boðist að fá mynd af sér með Carter að athöfninni lokinni.
„Þetta var áhugaverð upplifun og merkilegt að sjá hvað Carter er skýr í kollinum þrátt fyrir háan aldur en hann er 92 ára,“ sagði Arnór.
Arnór og Ólafur hófu ferð sína í Houston í Texas en ferðalaginu lauk í gærkvöldi þar sem þeir sóttu lokahóf Hillary Clinton í New York.