Myndakeppni Veiðimannsins komin af stað Karl Lúðvíksson skrifar 2. nóvember 2016 11:18
Það er fátt eins skemmtilegt og að fara í gegnum veiðimyndir nýliðins sumars og finna þar myndir sem gaman er að deila með vinum og vandmönnum. Eins og allir þeir sem eiga veiðimann í fjölskyldunni taka eftir fjölgar veiðimyndum alltaf þegar vorið kemur og veiðimyndáráttan nær líklega hámarki á sumrin þegar veiðimenn deila myndum af afla og skemmtilegum augnblikum á samfélagsmiðlum. Það er því um að gera ef þú liggur á skemmtilegri mynd að deila henni í veiðikeppni og fá kannski veglega vinninga út á myndina. Veiðimaðurinn er að fara í veiðimyndakeppni og við deilum hér tilkynningu frá þeim og hvetjum auðvitað alla veiðimenn til að taka þátt."Það er algjörlega ómissandi að hafa myndavél með sér í veiðiferðina. Góð mynd af þeim stóra sem þarf að sleppa er ómetanleg og svo er líka gaman að fanga eftirminnileg atvik til að skoða síðar eða mynda íslenska náttúru í allri sinni dýrð. Úrslitin í myndasamkeppni Veiðimannsins, um bestu veiðimyndina frá ársvæðum SVFR sumarið 2016, ráðast senn en frestur til að skila inn myndum rennur út 10. nóvember nk.Myndin sem verður valin fær 50 þúsund króna inneign upp í veiðileyfi næsta sumars og á möguleika að birtast á forsíðu jólablaðs Veiðimannsins. Úrval innsendra mynda verður birt í Veiðimanninum nr. 203 sem kemur út í byrjun desember. Myndir má senda á ritstjóra blaðsins, Hörð Vilberg, á netfangið [email protected]. Veiðimaðurinn hefur komið út frá árinu 1940 og hefur bæði frætt og kætt fjölmagar kynslóðir í meira en 75 ár."
Mest lesið Refaveiðar í uppáhaldi hjá Maríu Veiði Mikið rætt um verðhækkanir veiðileyfa Veiði Mikið líf í Hítarvatni Veiði Sogið Bíldsfell loksins komið í gang Veiði Fyrstu laxarnir mættir! Veiði SVFR gerir nýjan samning um Haukadalsá Veiði Það eru stórir fiskar í Kleifarvatni Veiði 101 sm lax úr Ytri Rangá Veiði Vatnsmikil saga úr Geirlandsá Veiði Minnivallalækur tekur við sér Veiði