Áhorfendur virðast heldur betur hafa tekið vel á móti kvikmyndinni Rogue One: A Star Wars Story í kvikmyndahúsum. Kvikmyndin þénaði 155 milljónir dala á opnunarhelginni í Bandaríkjunum, sem er næst stærsta opnunarhelgi sögunnar í desember þar í landi.
Myndin sem á stærstu opnunarhelgi í desember er Star Wars: The Force Awakens, sem frumsýnd var í fyrra. Hún þénaði 290,5 milljónir dala.
Þetta er fyrsta Star Wars myndin sem fjallar ekki á nokkurn hátt um Skywalker fjölskylduna, þó einum meðlimi þeirrar fjölskyldu bregði fyrir, og hafði Disney reynt að draga úr væntingum varðandi velgengni myndarinnar fyrir forsýningu hennar. Fyrirtækið vinnur nú að framleiðslu fleiri mynda úr Star Wars heiminum og er sú næsta um ungan Han Solo.
Þá er líklegt að tekjur af myndinni muni hækka verulega, þar sem samkeppnin er lítil í kvikmyndahúsum.
Rogue One gífurlega vel tekið

Tengdar fréttir

Allt sem þú þarft að vita um nýju Star Wars myndina áður en þú sérð hana
Rogue One má í raun kalla kafla 3,5 sé litið til tímatalsfræði Star Wars myndanna.

Stærstu bíósmellir ársins 2016
Ofurhetjumyndir og talandi dýr eru allsráðandi.

Duttu hressilega í það við tökur á Rogue One á Íslandi
"Ísland hentar dásamlega fyrir söng og dans, eins og Íslendingar sjálfsagt vita.“